Þegar Gaui Þórðar skutlaði Gylfa á æfingar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. október 2013 13:30 Gylfi Þór og Guðjón árið 2009. Mynd/Samsett „
Nei, ég held að Gaui hafi bara sofið fremst í rútunni,“ sagði ungur og efnilegur Gylfi Þór Sigurðsson vorið 2009 í viðtali við Fótboltaþáttinn á Útvarpi Sögu. Gylfi var þá nýkominn til Crewe á lánssamningi en hann var samningsbundinn Reading. Gylfi var nýstiginn úr rútu Crewe fyrir leik sem framundan var á útivelli daginn eftir. Stjóri Crewe var Guðjón Þórðarson sem fékk um leið það hlutverk að sækja Gylfa á hótelið fyrir æfingar liðsins. „Hann hefur verið á réttum tíma til þessa,“ sagði Gylfi léttur. Hafnfirðingurinn var nítján ára þegar viðtalið var tekið og að fóta sig í enska boltanum. Hann viðurkenndi að hann léti Guðjón ekki bíða eftir sér þegar hann kæmi að sækja sig. „Ég er alltaf mættur á réttum tíma og tíu mínútum fyrr,“ sagði Gylfi léttur. Víða var komið við í spjallinu og kom á daginn að Gylfi stundaði fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Hann viðurkenndi þó að meiri tími færi í að leikjatölvurnar en námsbækurnar. Þá var Gylfi ekki alveg viss hversu fyrirferðamikill nammipokinn væri á varamannabekknum hjá Guðjóni sem stjóra á Englandi. Spyrnumaðurinn hafði verið í Englandi í um eitt ár þegar þarna var komið sögu. Hann átti enn eftir að stimpla sig inn í liðið hjá Reading og fór af þeim sökum í lán. Fyrst til Shrewsbury og síðar Crewe. Strax um haustið var hann orðinn lykilmaður hjá Reading, skoraði 17 mörk í 38 deildarleikjum. Síðan hefur Gylfi Þór stimplað sig inn í ensku úrvalsdeildina, leitt U21 árs landslið Íslands í lokakeppni EM og farið á kostum með karlalandsliðinu í yfirstandandi undankeppni fyrir HM í Brasilíu. Ótrúleg fjögur ár svo ekki sé meira sagt.Hægt er að hlusta á viðtalið við Gylfa með því að smella hér. Viðtalið hefst eftir 23 mínútur af þættinum.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira