Rooney: Þurfum að leika betur Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 15. desember 2013 12:15 Rooney hefur verið frábær en liðið ekki mynd/nordic photos/getty
Wayne Rooney framherji Englandsmeistara Manchester United segir liðið þurfi að gera betur og fara að leika eins og meisturum sæmir eftir slakt gengi og slaka frammistöðu það sem af er tímabilinu. Manchester United hefur tapað tveimur síðustu leikjum sínum en liði mætir Aston Villa á útivelli klukkan 13:30 í dag í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. „Við verðum allir að leika betur,“ sagði Rooney við fjölmiðla í aðdraganda leiksins í dag. „Við höfum ekki leikið nógu vel og nú þurfum við að stíga fram og sýna af hverju við urðum meistarar á síðustu leiktíð og gera betur. „Við eigum nokkra leiki núna sem við eigum að geta unnið og vonandi gerum við það.“ Rooney hefur verið ljósið í myrkrinu hjá Manchester United það sem af er tímabilinu. Hann hefur skorað 10 mörk og leikið frábærlega. „Þetta snýst ekki um mig. Þetta snýst allt um liðið. Ef liðinu gengur ekki vel þá skiptir ekki máli hvernig ég leik. Við þurfum að gera betur sem lið, bretta upp ermar og leika betur. „Við þurfum að horfa raunsætt á stöðuna, rífa okkur upp töfluna og sjá hvar við verðum eftir fjóra, sex eða átta leiki,“ sagði Rooney en Manchester United er í 9. sæti þegar flautað verður til leiks í dag, þremur stigum á undan Aston Villa. „Þetta er ekki gott. Við erum allt stoltir leikmenn og okkur líður ekki vel í þessari stöðu. Þetta er sárt og vonandi munum við bregðast við á réttan hátt. „Við höfum ekki leikið eins vel og við getum og nú þurfum við að bæta úr því. Það eru margir leikir eftir og mörg stig í pottinum.“
Enski boltinn Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Heilbrigðisráðherra lætur óvin Íslands heyra það Handbolti Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Dramatísk úrslit og vonir beggja liða nánast úr sögunni Handbolti Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Svíar furðu lostnir og of næs: „Létu pakka sér saman“ Handbolti Fleiri fréttir Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Sjá meira