Öruggt hjá Manchester United í Birmingham Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 15. desember 2013 00:01 Nordic Photos / Getty Images
Manchester United skellti Aston Villa 3-0 á Villa Park í Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. United var 2-0 yfir í hálfleik og var sigurinn í senn þægilegur og öruggur. Darren Fletcher snéri aftur á völlinn í seinni hálfleik. Aston Villa byrjaði leikinn betur og var hættulegt í sínum aðgerðum en það var Danny Welbeck sem skoraði tvö mörk fyrir Manchester United á þriggja mínútna kafla áður en 20 mínútur voru liðnar af leiknum. Á 15. mínútu átti Rafael frábæra fyrirgjöf á Januzaj sem skallaði fast í stöngina en þaðan fór boltinn til Welbeck sem gerði mjög vel í að stýra boltanum í netið. Á 18. mínútu sendi Welbeck á Valencia sem sendi fyrir frá hægri þangað sem Welbeck var mættur til að senda boltann í samskeytin og inn. Tvö glæsileg mörk hjá Welbeck sem gerðu í raun út um leikinn á augabragði. Hafi Aston Villa átt einhverja von í upphafi seinni hálfleiks þá hvarf hún þegar Tom Cleverley kom Manchester United í 3-0 á 52. mínútu. Darren Fletcher snéri aftur á völlinn þegar hann kom inn á sem varamaður á 70. mínútu en hann þjáðist af sáraristilsbólgu og hefur glímt við það síðustu tvö árin. Sigur Manchester United var öruggur og hefði hæglega getið orðið enn stærri því liðið fékk fjölda færa sem liðið nýtti ekki. Manchester United lyfti sér upp í 8. sætið með sigrinum og upp fyrir Southampton en Aston Villa er í 11. sæti.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Handbolti Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Fótbolti „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Fótbolti Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira