Dean Windass reyndi að fyrirfara sér Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. janúar 2012 14:45 Windass fagnar sæti Hull í efstu deild vorið 2008. Nordic Photos / Getty Images
Dean Windass, fyrrum sóknarmaður Hull City, hefur viðurkennt að hafa reynt að taka eigið líf eftir baráttu við áfengi og þunglyndi sem hófst þegar knattspyrnuskórnir fóru á hilluna fyrir tveimur árum. Windass, sem skoraði markið sem tryggði Hull sæti í efstu deild enska boltans í fyrsta skipti í 104 ár á vordögum 2008, spilaði einnig í úrvalsdeildinni með Bradford og Middlesbrough. Atvinnumannaferlinum, sem spannaði 19 ár, lauk árið 2010. „Ég hef grátið hvern einasta dag þau tvö ár síðan ég lagði skóna á hilluna. Fólk utan knattspyrnunnar heldur að við höfum það svo gott. Ég upplifði mig hins vegar í holu og vissi í sannleika sagt ekki hvernig ég gæti komist upp úr henni," sagði Windass við People-tímaritið. „Fyrir viku leið mér verr en nokkru sinni og ákvað að binda endi á þetta allt saman." „Fyrst tók ég of stóran skammt af lyfjum og þegar það mistókst reyndi ég að hengja mig. Ég var svo einmana og taldi mig ekki hafa neitt til þess að lifa fyrir. Ég þarf að taka til í mínum málum sem er ástæða þess að ég er að segja heiminum frá þessu. Það er hluti þess að verða betri, hluti af meðferðinni," segir Windass sem skildi meðal annars við konu sína eftir að knattspyrnuferlinum lauk. Windass, sem hafði á hátindi ferilsins um 100 milljónir í árstekjur, segist hafa tapað nánast öllum peningunum. Nú hafi hann engar tekjur og lifi á þeim litlu peningum sem eftir séu.
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira