Hrollvekjandi glæpaiðnaður: Gefðu nýra og keyptu iPad 28. maí 2012 11:42
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) áætlar að tíu þúsund nýru séu seld á svörtum markaði árlega. Það þýðir að nýra er fjarlægt með ólöglegum hætti úr einstaklingi á klukkutíma fresti. Oft eru nýrun fjarlægð úr líkama fólks gegn þeirra vilja. Breska blaðið Guardian fjallar um málið á vefsíðu sinni en þar kemur fram að þeir sem selja úr sér nýra fá 5000 þúsund dollara fyrir viðvikið. Það gera rúmlega 600 þúsund krónur. Nýrað er síðan selt til vel efnaðra einstaklinga frá Vesturlöndum eða Mið-Austurlöndum. Þeir greiða um 26 milljónir króna fyrir nýrað. Ástæðan fyrir þörf á nýju nýra er mikil aukning á sykursýki í velferðarsamfélögum heimsins. Umfang líffæraglæpa kom bersýnilega í ljós á dögunum þegar ísraelska lögreglan upprætti klíku sem braskaði með líffæri. Þá var læknir handtekinn auk tíu annarra. Líklega er um alþjóðlegan líffæraglæpahring að ræða. Þeir eru meðal annars ákærðir fyrir kúgun, skattsvik og að hafa valdið annarri manneskju meiriháttar skaða. Fréttamaður Guardian komst síðar í samband við líffærabraskara í Kína sem auglýsti þjónustu sína með eftirfarandi slagorði: „Gefðu nýra og keyptu nýjan iPad!" Sá sami bauðst til þess að framkvæma skurðaðgerðina á innan við tíu dögum. Það er ljóst að fimm þúsund dollarar eru talsverðir peningar í Kína. Þeir sem samþykkja hinsvegar að láta fjarlægja úr sér nýra geta ekki hætt við. Því fékk hinn 25 ára gamli Hu Jie að kynnast. Hann vildi hætta við að gefa nýra úr sér en var engu að síður neyddur á skurðborðið. Um 75 prósent af líffærabraski hverfist um nýru. Ástæðan er einföld, eftirspurnin eftir nýju nýra er gríðarleg. Þannig gerir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin ráð fyrir því að þessi tíu þúsund nýru sem eru seld og grædd í kaupendur, svari aðeins tíu prósent af eftirspurninni eftir nýra í hinum vestræna heimi. En vandamálið er víðtækara. Þannig er talið að hersjúkrahús í Kína bjóði upp á samskonar þjónustu. Ástæðan er sú að kínversk yfirvöld fjarlægja líffæri úr föngum sem eru líflátnir og selja aftur. Þá skiptir engu hvort viðkomandi fangi hafi gefið leyfi fyrir því eða ekki. Þessi hegðun kínverskra yfirvalda hefur verið fordæmd um allan heim. Kínverjar lofa nú að hætta að ræna líffærum úr föngum fyrir árið 2017. En hvað er til ráða? Breski prófessorinn Jim Feehally segir í viðtali við Guardian að ríki þurfa að stórauka framboð af líffæragjöfum. Þá þurfi hreinlega að hvetja almenning í hinum vestræna heimi til þess að stunda heilbrigðari lífsstíl svo þeir fái ekki áunna sykursýki.
Mest lesið Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent „Bara djók sem gekk of langt“ Innlent Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs Innlent Fleiri fréttir Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum „Gjörsamlega óásættanlegt“ Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju „Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Sjá meira