Peningakastið í Manchester verður rannsakað SÁP skrifar 9. desember 2012 21:00
Það varð allt vitlaust á Manchester-vellinum í dag þegar Robin van Persie, leikmaður Manchester United, tryggði liði sínu sigurinn á lokamínútum leiksins gegn grönnum sínum í Man. City. Peningum var kastað inná völlinn með þeim afleiðingum að einn þeirra hafnaði í gagnauganu á Rio Ferdinand, leikmanni Manchester United, og blæða fór úr leikmanninum. Einn stuðningsmanna Man. City hljóp inná völlinn og virtist ætla ráðast á Rio Ferdinand en Joe Hart, markvörður Man. City, náði að stöðva aðdáandann. Enska knattspyrnusambandið hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að sambandið mun rannsaka málið að fullu og fær aðstoð frá Manchester City og lögreglunni í Manchester. „Það eru mikil vonbrigði að eftir svona frábæran leik og þessa auglýsingu fyrir ensku úrvalsdeildina að við þurfum að ræða um svona mál," sagði talsmaður enska knattspyrnusambandsins, eftir leikinn. „Við munum vinna með klúbbnum og lögreglunni í rannsókn málsins og förum fram á það að þeir sem áttu í hlut fái ævilangt bann frá leikjum í deildinni." „Við fyrirlítum svona atvik og munum ekki líða svona hegðun, það er einfaldlega óásættanlegt að leikmaður verði fyrir meiðslum vegna svona hegðunar." „Við verðum alltaf að vernda leikmenn gegn svona og það verður fast tekið á málinu." Manchester City hefur einnig gefið frá sér yfirlýsingu um málið. „Öryggisverðir og starfsfólk vallarins mun starfa í samráði við lögregluna í Manchester og komast í botn um málið." „Félagið vill biðja Rio Ferdinand afsökunar á þessu atviki og við vonum að hann nái sér fljótlega." „Við munum skoða allar eftirlitsupptökur og rannsaka málið í samvinnu við lögregluna. Einnig verður rætt við vitni um málið. Þetta munum við ekki líða á okkar velli." Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira