Arsenal brenndi af vítaspyrnu í uppbótartíma | Öll úrslit dagsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. nóvember 2012 00:01 Giroud skoraði tvö fyrir Arsenal í dag. Nordic Photos / Getty Images
Arsenal mátti sætta sig við 3-3 jafntefli við Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag þrátt fyrir að hafa fengið vítaspyrnu á fjórðu mínútu uppbótartímans. Everton og West Brom unnu bæði góða sigra í dag. Mikel Arteta steig á punktinn en hann hafði gert sig sekan um mistök fyrr í leiknum þegar hann braut á leikmanni Fulham í eigin vítateig. Mark Schwarzer, markvörður Fulham, varði hins vegar vítaspyrnu Arteta og niðurstaðan því jafntefli. Arsenal komst snemma í 2-0 forystu með mörkum þeirra Olivier Grioud og Lukas Podolski. En leikmenn Fulham gáfust ekki upp og jöfnuðu metin áður en fyrri hálfleikur var flautaður af. Dimitar Berbatov og Alexander Kacaniklic gerðu það en Berbatov lagði upp síðara markið. Arteta braut svo á Bryan Ruiz í síðari hálfleik og skoraði Berbatov úr vítaspyrnunni. Giroud náði þó að jafna metin fyrir Arsenal aðeins tveimur mínútum síðar en þar við sat.Fellaini og félagar fagna í dag.Nordic Photos / Getty ImagesEverton vann góðan 2-1 sigur á Sunderland. Gestirnir komust yfir með marki Adam Johnson í fyrri hálfleik en Everton sneri leiknum sér í vil með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla í síðari hálfleik. Fyrst skoraði Marouane Fellaini og hann lagði svo upp sigurmark leiksins fyrir Nikica Jelevic. Everton er enn í fjórða sæti deildarinnar með jafn mörg stig og West Brom, sem vann 2-1 sigur á Wigan á útivelli.Billy Jones fagnar seinna marki West Brom en það skráðist sem sjálfsmark á Gary Caldwell.Nordic Photos / Getty ImagesJames Morrison kom West Brom yfir á 31. mínútu og liðið komst 2-0 yfir með sjálfsmarki Gary Caldwell. Arouna Kone minnkaði muninn fyrir Wigan en nær komust heimamenn ekki. Stoke hafði betur gegn QPR, 1-0, með marki Charlie Adam en Southampton gerði 1-1 jafntefli við Swansea á heimavelli. Reading og Norwich skildu jöfn í markalausum leik en þetta var sjötta jafntefli Reading á tímabilinu. Reading og QPR eru einu liðin í deildinni sem eru enn án sigurs. Þessi tvö lið ásamt Southampton eru í þremur neðstu sætum ensku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Fleiri fréttir Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Sjá meira