Harry Redknapp, stjóri QPR, er þegar farinn að huga að því að styrkja lið sitt í janúar og hann horfir vestur yfir haf til Bandaríkjanna.
Þar eru leikmenn eins og Robbie Keane og Tim Cahill sem Redknapp er hrifinn af.
"Markaðurinn í Bandaríkjunum er eitthvað sem við erum að skoða. Robbie er til að mynda áhugaverður leikmaður. Ég hef samt ekki enn rætt við hann. Það væri gott að hafa slíkan mann í hópnum," sagði Redknapp.
Redknapp er líka að skoða David Bentley, leikmann Tottenham sem er í láni hjá rússneska liðinu Rostov og sá lándssamningur rennur út í janúar.
