Gylfi Þór: Breyti ekki venjum mínum 18. ágúst 2012 15:00 Nordicphotos/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður og nýr leikmaður Tottenham, vonast eftir að verða í brennidepli í dag þegar Lundúnaliðið mætir Newcastle í fyrsta leik tímabilsins. Kjartan Guðmundsson ræddi við Gylfa í landsliðsskreppitúr til Íslands í vikunni. Þetta hefur verið langt undirbúningstímabil, leikmennirnir hafa beðið lengi eftir fyrsta leikdegi og ég held að allir séu tilbúnir í slaginn. Það ríkir mikil spenna í herbúðum Tottenham og væntingarnar eru miklar," segir landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson sem skrifaði undir samning við enska stórliðið Tottenham í byrjun síðasta mánaðar. Enska úrvalsdeildin hefst í dag og sækir Lundúnaliðið Newcastle heim í fyrsta leik. Gylfi gekk til liðs við Tottenham í kjölfar frábærs gengis hjá Swansea eftir áramót, en þar var hann lánsmaður frá þýska liðinu 1899 Hoffenheim. Gylfi lék með íslenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Færeyjum á Laugardalsvellinum í vikunni. Leikar fóru 2-0 fyrir Ísland, en viðureignin var liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni HM sem fram fer í Brasilíu eftir tvö ár. Bestur í golfi í TottenhamÞú hefur væntanlega í mörg horn að líta þegar þú kemur til landsins, hvort sem er til að spila landsleiki eða í frí? „Ég neita því ekki að ég er oft dálítið upptekinn í Íslandsheimsóknunum. Dagskráin í kringum landsleikina er stíf, en þegar ég fæ frídaga reyni ég oftast að nýta þá til að slappa af. Nú fékk ég að koma til Íslands tveimur dögum fyrr en áætlað var og nýtti þá til að heimsækja fjölskyldu og vini. Ég fylgist vel með FH og fer á alla leiki sem ég kemst á með liðinu þegar ég er á landinu. Svo finnst mér líka gott að fara upp í sumarbústað og spila golf." Þú ert mikill golfáhugamaður? „Já, ég spila mjög mikið golf. Úti í London spila ég eins mikið golf og ég get þegar mér gefst tími til. Það eru margir frábærir vellir á Englandi, sérstaklega á London-svæðinu og gaman að spila þar." Hverjir eru helstu golf-félagar þínir í London? „Ég spila mikið við Eggert Gunnþór Jónsson, félaga minn í landsliðinu og leikmann Wolves, sem býr í Mið-Englandi og er því ekkert allt of langt frá mér. Hann var betri en ég í fyrra en ég tók mig á og vann hann nýlega í fyrsta skipti. Svo spilaði ég við nokkra af Tottenham-strákunum í æfingaferðinni okkar til Bandaríkjanna í síðasta mánuði og á eftir að spila mun meira með þeim." Hver er bestur í golfi í Tottenham? „Ætli ég verði ekki að taka það á mig. Ég vann þá alla og vonandi heldur það áfram þannig." Villas-Boas virkar vel á migHvað gerirðu af þér í frístundum á Englandi annað en að spila golf? „Annað en að kenna Eggert Gunnþóri golf, meinarðu? Í rauninni reyni ég bara að slappa sem mest af. Leiktímabilið er svo langt og álagið svo mikið að maður þarf á því að halda að taka því rólega. Reyndar koma mjög oft gestir til okkar og þá gerum við eitthvað með þeim." Kanntu vel við þig í stórborginni? „Já, mjög vel. Ég bjó auðvitað lengi í Reading [Gylfi gekk til liðs við Reading sextán ára gamall árið 2005 og bjó þar meira og minna til ársins 2010 þegar hann var seldur til Hoffenheim] sem er í fjörutíu mínútna fjarlægð frá London og þekki svæðið mjög vel, sem er þægilegt. London er auðvitað risastór borg en ég er farinn að ná áttum í kringum æfingasvæði Tottenham í norðurhluta London. Ég bý í um fimmtán mínútna fjarlægð frá æfingasvæðinu á mjög góðum stað. London er líka það sunnarlega að veðrið er fínt miðað við England. Það snjóar að minnsta kosti minna í London en í Newcastle." Bestu kantmenn í deildinni Hvernig meturðu frammistöðu þína í æfingaleikjum Tottenham í Bandaríkjunum í síðasta mánuði, þar sem þú skoraðir meðal annars sigurmarkið gegn New York Red Bulls? „Bandaríkjaferðin var mjög góð að mörgu leyti. Ég fékk að spila mikið, í raun meira en ég bjóst við í svona æfingaferð, og mér gekk vel og er sáttur. Í svona ferðum erum við strákarnir líka saman alla daga og öll kvöld og kynnumst því betur en þegar við hittumst tvo til þrjá tíma í senn á æfingasvæðinu og æfingarnar skila sér vel." Ertu farinn að finna fyrir því hver staða þín í liðinu verður í vetur? „Nei, í raun ekki, því þegar tímabilið hefst kemst meiri rútína á skipulagið. Við spilum auðvitað rosalega marga leiki, í deildinni, tveimur bikarkeppnum og Evrópudeildinni, svo það verður einhver rótering á mannskapnum en það er erfitt að segja til um það nákvæmlega hvar mín staða verður í liðinu. Hópurinn hjá Tottenham er mjög góður og flestir hafa spilað í bestu deildum heims í mörg ár." Hlakkar þú sérstaklega til að spila með einhverjum ákveðnum leikmönnum? „Já, en ef ég nefni einn þyrfti ég strax að nefna annan og svo koll af kolli. Það er gaman að spila með þeim flestum." Og þar á meðal kantmönnum liðsins, væntanlega? „Já, við erum með tvo af allra bestu kantmönnunum í deildinni, þá Gareth Bale og Aaron Lennon. Þeir eru báðir öskufljótir og það verður gaman að spila með þeim í vetur. Þjálfarinn, André Villas-Boas, virkar líka mjög vel á mig. Hann stóð sig frábærlega hjá Porto og þótt hlutirnir hafi ekki alveg gengið upp hjá honum hjá Chelsea hef ég trú á að hann læri af því og hann er mjög ákveðinn í að allt gangi upp hjá Tottenham." Eðlilegt að velja Tottenham fram yfir LiverpoolFyrr í sumar áttu sér stað miklar vangaveltur varðandi ástæður þess að þú valdir að ganga til liðs við Tottenham en ekki Liverpool, sem einnig hafði borið víurnar í þig. Hvað réði þeirri ákvörðun að velja Tottenham? „Ég held að það segi sig í rauninni sjálft þegar litið er á þessi tvö lið og gengi þeirra síðustu árin. Tottenham er með heimsklassahóp." Ein af sögusögnunum gerði ráð fyrir að ástæðan fyrir því að þú valdir Tottenham væri sú að þú ert mikill stuðningsmaður Manchester United og gætir þess vegna ekki hugsað þér að spila fyrir erkifjendur þess liðs. Er eitthvað hæft í því? „Ég heyrði af ýmsum sögusögnum í sumar en var lítið að velta mér upp úr þeim. Stuðningur minn við Manchester United kemur málinu ekkert við heldur tók ég þessa ákvörðun fyrir sjálfan mig á knattspyrnulegum grundvelli." Brendan Rodgers, sem þjálfaði þig hjá Swansea, er tekinn við Liverpool og þekkir þig vel sem leikmann, en slíkt var ekki uppi á teningnum með André Villas-Boas. Telurðu að það hafi verið áhætta að fara til Tottenham? „Nei, alls ekki. Ég spjallaði við hann áður en ég skrifaði undir og vissi hvað hann var að hugsa. Tottenham er risastór klúbbur með frábæra sögu, ég hef fulla trú á sjálfum mér og þetta er engin áhætta." Læt ekki athyglina trufla mig Fyrsti leikur Íslands í undankeppni HM 2014 fer fram þann 7. september gegn Noregi á Laugardalsvelli. Nú tala ýmsir um að drátturinn í riðilinn virðist hagstæður fyrir Ísland og afar raunhæfur möguleiki sé á sæti í aðalkeppninni í Brasilíu. Ertu sammála því? „Ég held að enginn af okkur leikmönnunum sé feiminn við að segja að við ætlum okkur upp úr þessum riðli. Það er markmiðið, en það verður erfitt því riðillinn er erfiður þótt í honum séu engar stórþjóðir í knattspyrnuheiminum. Norðmenn eru alltaf erfiðir, svissneska landsliðið er mjög gott og Slóvenar eru alltaf mjög tæknilega góðir. Það verður sérstaklega erfitt að spila við Slóvena úti. En þetta verður spennandi og skemmtilegur riðill. Vonandi náum við að byrja vel og þá er allt hægt í þessu." Hingað til hefur farið það orð af þér að þú sért hinn fullkomni atvinnumaður, að þú sért mættur fyrstur á æfingar, farir síðastur, hugsir vel um líkamann og leggir gríðarlega hart að þér við ýmsar aukaæfingar. Á þetta enn við rök við styðjast? „Já. Ég fer ekkert að breyta mínum venjum, því það eru þessir hlutir sem hafa hjálpað mér að ná svona langt." Finnurðu fyrir því að vera orðinn þekkt andlit og fyrirmynd margra íslenskra barna? „Ég fann líka fyrir því að fólk þekkti mig úti á götu hjá Swansea, en auðvitað hefur það aukist mjög eftir að ég kom til Tottenham. Ég kippi mér ekkert upp við þessa athygli og læt hana ekki fara í taugarnar á mér, enda er ég ekki eins og David Beckham sem kemst ekki út í búð án þess að vera eltur." Hvaða búðir kemstu helst út í? „Til dæmis Marks & Spencer eða Waitrose. Ég finn líka fyrir því að mörg íslensk ungmenni líta á mig sem fyrirmynd og reyni að standa mig vel í því hlutverki. Mér líður ágætlega með það, enda fylgir þetta starfinu." Og hvernig fer svo leikurinn gegn Newcastle í dag? „Eigum við ekki að segja að við vinnum 2-1 á útivelli? Ég skora sigurmarkið."
Mest lesið Gísli Þorgeir og Ómar Ingi Evrópumeistarar Handbolti Uppgjörið: Valur - Fram 1-2 | Endurkomusigur hjá Fram Íslenski boltinn Uppgjörið: Afturelding - ÍA 4-1 | Mosfellingar upp úr fallsæti Íslenski boltinn Upgjörið: Vestri - KA 1-0 | Vestri á Ísafirði er alltaf Vestri Íslenski boltinn Ræddi metið við son Tryggva: „Myndi skipta mig miklu máli að ná þessu meti“ Íslenski boltinn Segja Andra Lucas til sölu Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 0-2 | Blikar ekki í vandræðum í Eyjum Íslenski boltinn „Mjög ryðguð en furðu fljótt fór rykið af mér“ Íslenski boltinn Markalaus en öruggur opnunarleikur í Miami Fótbolti Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Enski boltinn Fleiri fréttir Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Draumur Cunha rættist Grealish fer ekki með á HM félagsliða Liverpool að landa dýrasta leikmanni í sögu deildarinnar City staðfestir kaupin á Reijnders Sendi sónarmynd: Tvö ákærð eftir fjárkúgun gamallar kærustu Vilja tæpa tólf milljarða fyrir Garnacho Arftaki hins titlaóða Carsons fundinn Man City staðfestir kaupin á Cherki Forest vill niðurstöðu í mál Palace Man City ræður annan úr teymi Klopp hjá Liverpool Chelsea vill Gittens áður en glugginn lokar Allt klárt og Frank verður næsti stjóri Tottenham Aït-Nouri fyrstur inn um dyrnar hjá Man City Segja Man United hafa sett í samband við Sporting vegna framherjans eftirsótta Sjá meira