Fær Gylfi aftur tækifæri í dag? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2012 08:15 Gylfi Þór Sigurðsson í baráttu við Wayne Rooney.nordicphotos/getty
Tottenham tekur á móti toppliði Chelsea á White Hart Lane í hádeginu í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni en bæði lið hafa verið á miklu skriði að undanförnu. Tottenham hefur unnið fjóra síðustu deildarleiki sína og Chelsea er með fjögurra stiga stiga forskot á toppnum eftir að hafa náð í 19 af 21 mögulegu stigi í fyrstu sjö umferðunum. Gylfi Þór Sigurðsson hefur ekki verið í byrjunarliðinu hjá Tottenham í undanförnum tveimur deildarleikjum á móti Manchester United og Aston Villa en Andre Villas-Boas veðjaði frekar á að stilla Clint Dempsey upp í holunni á bak við fremsta mann í þessum tveimur leikjum. Dempsey átti þátt í marki í báðum leikjum. Gylfi var síðast í byrjunarliðinu í deildinni á móti Queens Park Rangers en var þó tekin útaf í hálfleik í stöðunni 0-1 fyrir QPR. Tottenham vann leikinn 2-1 og Gylfi hefur síðan aðeins fengið samtals rúman hálftíma í undanförnum tveimur leikjum. Gylfi hefur komið inn á fyrir Dempsey í báðum leikjum og valið virðist nú standa á milli þeirra. Villas-Boas, stjóri Tottenham, er þarna að mæta félaginu sem rak hann fyrir aðeins níu mánuðum og eykur það aðeins á dramatíkina í kringum leikinn í viðbót við að vera Lundúnaslagur og leikur milli tveggja liða á miklu skriði.. Þetta er annars viðburðarríkur laugardagur því öll „stóru" liðin eru að spila í dag enda Evrópuleikir framundan í næstu viku.
Enski boltinn Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti Fleiri fréttir Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Sjá meira