Allra augu beinast að þessum leik Kjartan Guðmundson skrifar 28. janúar 2012 10:00 Sigurður Hlöðversson.
Sigurður Hlöðversson, útvarpsmaður, hugmyndasmiður og ritari Stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi, sér ekki fyrir sér nein risavandamál tengd stórleiknum á Anfield í dag. „Ég hugsa að allir komist heilir frá leiknum, bæði leikmenn og áhorfendur, en það verður svakaleg spenna og allra augu munu beinast að þessum leik. Síðustu árin hafa ekki verið vandræði milli stuðningsfólks þessara liða, engin slagsmál og engin læti. Menn hafa verið að syngja söngva um hitt liðið í stúkunni og svona rígur er bara eðlilegur og skemmtilegur, svo lengi sem ekki er verið að níða menn niður heldur hía á þá. Liverpool átti lengi metið yfir flesta Englandsmeistaratitla og hafði montréttinn, sem núna hefur færst yfir til Manchester United og það virðist ekkert sérstaklega bjart fram undan hjá Liverpool þessa dagana. Stuðningsmenn liðsins mega heldur ekki við miklu því það er vel fylgst með þeim. En þetta er alltaf eins, það er alltaf þröngur hópur sem skemmir fyrir heildinni." Sigurður telur að Alex Ferguson eigi að láta Patrice Evra spila leikinn. „Ég held að það hafi ekki hvarflað að Ferguson að spila honum ekki. Ég held að hann lesi varla blöðin og taki ekki eftir neinu umtali heldur meti hlutina út frá sjálfum sér. Þetta er svipað og ef ríkisstjórn Íslands hegðaði sér í samræmi við símatíma Útvarps Sögu. Það þykjast allir vita hvernig á að gera hlutina." Sigurður spáir sínum mönnum 0-2 sigri á Anfield í dag. „Ég ætla að leyfa mér að spá því að ef Evra spilar leikinn þá skorar hann síðara markið og gerir allt vitlaust."
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Víkingur R. - Keflavík | Er aftur Evrópuþynnka? Íslenski boltinn Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira