Um 670 ólöglega til Norðurlandanna 6. janúar 2012 04:00 Útlendingastofnun hefur ekki fengið upplýsingar um að norska sendiráðið hafi gefið út vegabréfsáritun til Íslands. Fréttablaðið/Stefán
Norska sendiráðið í Manila á Filippseyjum var blekkt til að gefa út vegabréfsáritanir fyrir 670 filippseyska ríkisborgara sem gerðu þeim kleift að komast til Norðurlandanna. Sendiráðið gefur út áritanir til Danmerkur og Íslands þar sem hvorugt landið er með sendiráð í landinu. Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, segir að ekkert bendi til þess að fólk hafi komið hingað til lands á fölskum forsendum. Kona, sem ættuð er frá Filippseyjum en hefur danskan ríkisborgararétt, hefur verið ákærð fyrir mansal með því að hafa haft milligöngu fyrir útgáfu vegabréfsáritananna, að því er fram kemur á vef norska blaðsins Dagbladet. Konan rekur ferðaskrifstofu í Danmörku og blekkti norska sendiráðið með bréfum sem áttu að staðfesta að fólkið ætti skyldmenni í Danmörku eða Noregi. Sendiráðið gaf í kjölfarið út tímabundna ferðamannaáritun, en fólkið snéri ekki til baka þegar áritunin rann út. Talið er að fólkið sem komst til Norðurlandanna með þessum hætti hafi greitt konunni og samverkafólki hennar háar upphæðir fyrir áritunina. - bj
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira