Toppslagur í skugga deilna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. október 2012 09:30 Rio Ferdinand hitar upp fyrir leik Manchester United um síðustu helgi. Wayne Rooney er klæddur í "Kick It Out”-bolinn en Ferdinand neitaði að taka þátt í átakinu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Morgundagurinn verður þéttpakkaður í ensku úrvalsdeildinni en augu flestra munu beinast að tveimur leikjum. Annars vegar að borgarslag Everton og Liverpool á heimavelli fyrrnefnda liðsins og hins vegar stórslag toppliðs Chelsea og Manchester United. Umfjöllun enskra fjölmiðla hefur þó ekki aðeins beinst að knattspyrnunni heldur að stórum hluta að þeim fjölmörgu kynþáttadeilum sem virðast skjóta upp kollinum með reglulegu millibili í knattspyrnuheiminum. Sú deila sem vakið hefur langmesta athygli hófst fyrir ári síðan þegar að John Terry, fyrirliði Chelsea, hafði niðrandi orð um Anton Ferdinand, leikmann QPR. Bann og sektirTerry verður í banni í leiknum á morgun en málefni hans hafa verið helsta umfjöllunarefni enskra fjölmiðla síðustu vikurnar. Hann var nýlega úrskurðaður í fjögurra leikja bann fyrir orð sín en Anton er bróðir Rio Ferdinand, varnarmanns Manchester United. Mál þetta hefur haft gríðarleg áhrif á enska knattspyrnu. Terry er hættur að spila með landsliðinu, Ashley Cole var sektaður og ávíttur af enska knattspyrnusambandinu fyrir reiðiskrif sín á Twitter vegna málsins og Rio Ferdinand sömuleiðis fyrir að saka Cole um að vera „hvítan að innan". Þá hafa fjölmargir aðrir knattspyrnumenn látið sig málið varða. Nú stendur yfir átak í ensku úrvalsdeildinni sem nefnist „Kick It Out" og beinist gegn kynþáttafordómum. Jason Roberts, framherji Reading, reið á vaðið þegar hann kom opinberlega fram og neitaði að klæðast bol í upphitun eins og ætlast var til af leikmönnum liða í deildinni. Roberts fannst refsing Terry of væg og vildi vekja athygli á því með athæfi sínu. BrottrekstrarsökÞeir Ferdinand-bræður fóru að fordæmi Roberts um síðustu helgi og það gerðu einnig fleiri þeldökkir knattspyrnumenn í Englandi. Málið hefur komið af stað mikilli umræðu um kynþáttafordóma í enskri knattspyrnu og ekki minnkaði hún þegar að þeldökkir leikmenn enska U-21 landsliðsins voru úthrópaðir í leik í Serbíu fyrr í mánuðinum. Nú hafa samtök knattspyrnumanna í Englandi tilkynnt sex þrepa áætlun sem ætluð er til að taka harðar á kynþáttafordómum. Þar á meðal að hægt verði að reka leikmenn (og þjálfara) sem verða uppvísir að kynþáttaníði. Við munum fara að lögunum„Ef meirihluta félaga finnst að við þurfum lög eins og þessi munum við að sjálfsögðu fylgja þeim," sagði Roberto Di Matteo, knattspyrnustjóri Chelsea, á blaðamannafundi í gær. Chelsea hefur verið gagnrýnt fyrir að taka of vægt á John Terry en hann var aðeins sektaður. Ekki er búist við öðru en að Terry fái aftur fyrirliðabandið þegar hann hefur tekið út sína refsingu. Leikmenn Chelsea munu klæðast „Kick It Out"-bolunum fyrir leikinn á morgun og þá hafa enskir fjölmiðlar greint frá því að Ferdinand-bræður séu nú reiðubúnir að taka í hönd þeirra Terry og Cole. Þeir virðast því reiðubúnir að ná ákveðnum sáttum í þessari tiltekinni deilu. Fleiri aðgerða er þörfHvort leikur Chelsea og Manchester United á morgun markar einhvers konar kaflaskil í þessu máli er óvíst. Þó er líklegt að umræðan muni halda áfram. Ekki er þó búist við öðru en að Rio Ferdinand fái óblíðar móttökur hjá stuðningsmönnum Chelsea, rétt eins og í leik liðanna í febrúar þegar liðin skildu jöfn, 3-3. Alex Ferguson, stjóri United, er þó þeirrar skoðunar að fleiri aðgerða er þörf og þá sérstaklega að hálfu knattspyrnuyfirvalda. „Rio og Anton gerðu rétt," sagði hann og átti við sameiginlega yfirlýsingu þeirra fyrr í vikunni þar sem þeir sögðu að meira þyrfti til í baráttunni gegn kynþáttafordómum. „Kynþáttamálið kraumar enn undir yfirborðinu og er ekki alveg farið í burtu. Vitundarvakningin verður sífellt meiri. Leikmannasamtökin eru að gera sitt besta en UEFA, FIFA og enska knattspyrnusambandið þurfa að gera meira."
Enski boltinn Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Íslenski boltinn Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti Dagskráin í dag: Spenna í körfunni og fjör í Bestu mörkunum Sport „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Körfubolti Eina þjóðin sem kom ekki á ársþing FIFA en með á HM Fótbolti Fleiri fréttir Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjá meira