Millwall lagði tíu leikmenn Leeds Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. nóvember 2012 13:00 El Hadji Diouf var líflegur í liði Leeds í dag en tókst ekki að skora. Nordicphotos/Getty
Chris Wood, lánsmaður frá West Brom, tryggði Millwall 1-0 sigur á tíu leikmönnum Leeds í viðureign liðanna í Championship-deildinni í dag. Það var fátt um fína drætti í fyrri hálfleik en Andy Keogh, framherji heimamanna, komst næst því að skora þegar skot hans utan teigs fór rétt framhjá markinu. Millwall var betri aðilinn í fyrri hálfleik gegn Leeds var líklega enn að jafna sig á 6-1 tapinu gegn Watford um síðustu helgi. Það dró til tíðinda strax í upphafi síðari hálfleiks þegar Luke Varney, kantmaður Leeds, var rekinn af velli fyrir að gefa Adam Smith olnbogaskot. Tíu leikmenn gestanna áttu erfitt uppdráttar í kjölfarið en vörðust þó sóknartilþrifum heimamanna af kappi. Vörn Millwall hélt velli þar til fimm mínútum fyrir leikslok þegar Chris Wood skallaði boltann í netið af stuttu færi. LGestunum tókst ekki að ógna marki heimamanna það sem eftir lifði og Millwall vann sanngjarnan sigur. Kenny Jackett stjóri Millwall hefur snúið við gengi liðsins eftir fimm töp í fyrstu sjö leikjunum. Liðið er nú ósigrað í tíu leikjum og í 9. sæti deildarinnar með 26 stig. Hvorki gengur né rekur hjá Leeds sem situr í 18. sæti með 20 stig. Neil Warnock, stjóri Leeds, á erfitt verkefni fyrir höndum með liðið úr Jórvíkurskíri.
Enski boltinn Mest lesið Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Körfubolti Arfleifð Cool Runnings lifir áfram á Ólympíuleikunum Sport Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Ármann 93-102 | Ármenningar unnu í Keflavík Körfubolti „Mig kitlar svakalega í puttana“ Handbolti „Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ Körfubolti Leik lokið: ÍR - Stjarnan 109-118 | Stjörnumenn áfram á sigurbraut Körfubolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira