Bolton, Norwich og Stoke komin áfram í bikarnum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. janúar 2012 17:08 Eagles fagnar sigurmarki sínu í dag. Nordic Photos / Getty Images
Ensku úrvalsdeildarliðin Bolton, Norwich og Stoke eru komin áfram í 5. umferð enska bikarsins í knattspyrnu eftir sigra á andstæðingum sínum í dag. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea eru hins vegar úr leik. Stoke City sótti Derby County fram á Pride Park og vann 2-0 sigur. Cameron Jerome kom gestunum yfir í fyrri hálfleik og Þjóðverjinn Robert Huth bætti við marki tíu mínútum fyrir leikslok. Bolton vann 2-1 sigur á Swansea á Reebok-vellinum. Luke Moore kom gestunum yfir snemma leiks. Darren Pratley, fyrrum leikmaður Swansea jafnaði metin skömmu fyrir hálfleik. Það var svo miðjumaðurinn Chris Eagles sem tryggði Bolton sigurinn snemma í síðari hálfleik. Grétar Rafn Steinsson var ekki í leikmannahópi Bolton og Gylfi Þór Sigurðsson sat allan tímann á bekknum hjá Swansea. Þá vann Norwich 2-1 útisigur á West Brom. Grant Holt og Simeon Jackson skoruðu mörk gestanna í sitthvorum hálfleiknum. Marc-Antoine Fortune jafnaði metin í millitíðinni fyrir heimamenn. Þá urðu óvænt úrslit þegar D-deildarlið Crawley Town sló út Hull City með 1-0 útisigri.Önnur úrslit: Blackpool 1-1 Sheffield Wednesday Leicester 2-0 Swindon Millwall 1-1 Southampton Sheffield United 0-4 Birmingham Stevenage 1-0 Notts County
Enski boltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira