Stuðningsmaður Leeds sló Kirkland - myndband 19. október 2012 21:25
Sorgleg uppákoma átti sér stað í leik Sheffield Wednesday og Leeds í ensku B-deildinni í kvöld. Stuðningsmaður Leeds hljóp þá inn á völlinn og kýldi Chris Kirkland, markvörð Sheff. Wed, í andlitið. Atvikið átti sér stað í kjölfar þess að Leeds jafnaði metin í 1-1 stundarfjórðungi fyrir leikslok. Nokkrir stuðningsmanna Leeds hlupu úr stúkunni og fögnuðu við mark heimamanna. Einn gekk þó lengra en aðrir, hljóp að Kirkland og sló hann í andlitið. Árásina má sjá í myndskeiðinu hér ofan. Stöðva þurfti leikinn út af atvikinu þar sem huga þurfti að markverðinum en atvikið kom honum í opna skjöldu. Svo virtist sem hann ætlaði að hundsa fíflalæti stuðningsmannsins sem gekk langt yfir strikið. Neil Warnock, stjóri Leeds, fór fram á það eftir leikinn að ofbeldisfulli áhorfandinn yrði fangelsaður fyrir þessa hegðun. Dave Jones, stjóri Wednesday, lét hafa eftir sér að banna ætti stuðningsmenn Leeds á útivöllum. Umræddur áhorfandi hefur áður komist í kast við lögin fyrir skrípalæti á knattspyrnuleikjum. Sheffield Wednesday komst 1-0 yfir í fyrri hálfleik með skallamarki Jay Bothroyd. Heimamenn voru sterkari aðilinn heilt yfir en stórkostlegt mark Michael Tonge, miðjumanns Leeds, sá liðinu fyrir stigi. Það var í kjölfar langskots Tonge sem stuðningsmaðurinn réðst á Kirkland. Leeds United situr í 5.-6. sæti deildarinnar með 18 stig en Sheffield Wednesday er í þriðja neðsta sæti með 9 stig.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Glímdi við augnsjúkdóm Sport Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira