Barry tryggði City sigur | Öll úrslitin í ensku úrvalsdeildinni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. desember 2012 00:01 Carlton Cole sér rautt gegn Everton. Nordicphotos/Getty
Gareth Barry tryggði Manchester City þrjú stig með marki á ögurstundu gegn botnliði Reading í ensku úrvalsdeildinni í dag. Carlton Cole skoraði og sá rautt í tapi West Ham gegn Everton. Þá náði Tottenham aðeins markalausu jafntefli á heimavelli gegn Stoke.Hér fyrir neðan má sjá úrslit og umfjöllun um leikina sex sem hófust klukkan þrjú. Fyrr í dag vann Arsenal 1-0 útisigur á Wigan. Staðan í ensku úrvalsdeildinni. West Ham 1-2 Everton 1-0 Carlton Cole (14.) 1-1 Victor Anichebe (64.) 1-2 Steven Pienaar (74.) Carlton Cole kom West Ham yfir eftir stundarfjórðung. Hann skoraði þá með fínu skoti framhjá Tim Howard eftir að hafa farið framhjá Johnny Heitinga vörn Everton. Gestirnir frá Liverpool jöfnuðu metin á 64. mínútu með fínu marki. Victor Anichebe skallaði þá fyrirgjöf Steven Pienaar snyrtilega í netið framhjá Robert Green í marki heimamanna. Aðeins tveimur mínútum síðar urðu heimamenn fyrir áfalli þegar Carlton Cole fékk rauða spjaldið fyrir háskalega tilburði. Cole reyndi þá að ná til boltans með fótinn hátt á lofti. Laighton Baines reyndi að skalla sama bolta og féll til jarðar. Sóli Cole fór þó í síðu Baines sem varð ekki meint af. Dómnum var ekki haggað þrátt fyrir kröftug mótmæli heimamanna. Gestirnir gengu á lagið og Pienaar kom þeim yfir þegar stundarfjórðungur lifði leiks. Suður-Afríkumaðurinn og Leon Osman spiluðu þá skemmtilega saman og Pienaar kom knettinum yfir línuna. Everton skaust upp í fjórða sæti deildarinnar með sigri. Liðið hefur 30 stig líkt og Arsenal og Tottenham en Chelsea á leik til góða með 29 stig í 6. sætinu.Man. City 1-0 Reading 1-0 Gareth Barry (93.) Neðsta lið deildarinnar sýndi frábæra baráttu í heimsókn sinni á Etihad-völlinn í Manchester. Lærisveinar Brian McDermott vörðust af kappi og áttu sín færi eftir föst leikatriði. Manchester City tókst hins vegar að tryggja sér sigur á þriðju mínútu í viðbótartíma. Þá skoraði Gareth Barry með skalla úr teignum. Manchester City minnkaði muninn á toppi deildarinnar í þrjú stig með sigrinum. Manchester United á hins vegar leik til góða gegn Swansea á morgun.Tottenham 0-0 Stoke Gylfi Þór Sigurðsson kom inná sem varamaður hjá Tottenham á 79. mínútu í markalausu jafntefli Tottenham og Stoke. Það var fátt um fína drætti hjá báðum liðum og áhorfendur á White Hart Lane fengu lítið fyrir aðgangseyrinn í dag. Gylfi Þór komst næst því að skora fyrir heimamenn en hörkuskalli hans var frábærlega varinn af Amir Begovic.West Brom 2-1 Norwich 0-1 Rob Snodgrass (22.) 1-1 Zoltan Gera (43.) 2-1 Romelu Lukaku (82.) Belginn Romelu Lukaku, lánsmaður frá Chelsea, fékk dauðafæri á 20. mínútu fyrir West Brom en skot hans var vel varið af Declan Rudd í marki Norwich. Skömmu síðar komust gestirnir yfir. Norwich fékk aukaspyrnu rétt utan teigs og Rob Snodgrass setti knöttinn í netið. Spyrna Skotans var góð en Ben Foster hafði hönd á bolta og átti að gera betur. Gestirnir jöfnuðu metin á 43. mínútu, markamínútunni. Þá fylgdi Ungverjinn Zoltan Gera eftir skalla Jonas Olsson sem Rudd varði í slána. Rudd var undir mikilli pressu og hefði mögulega átt að fá dæmda aukaspyrnu. Jafnræði var með liðunum í síðari hálfleiknum. Það var hins vegar Lukaku sem skoraði sigurmark heimamanna með fallegum skalla átta mínútum fyrir leikslok.Southampton 0-1 Sunderland 0-1 Steven Fletcher (43.) Gestirnir frá Sunderland komust yfir á 42. mínútu með marki Skotans Steven Fletcher. Fletcher fékk þá boltann eftir skot Stephane Sessegnon og sendi boltann í netið. Fletcher hefur farið á kostum í búningi Svörtu kattanna á leiktíðinni. Þegar hann skoraði markið hafði hann skorað átta mörk úr fimmtán skotum sínum á leiktíðinni. Ótrúleg tölfræði. Ekkert mark var skorað í síðari hálfleik og gestirnir fögnuðu stigunum þremur. Sunderland hefur ekki tapað leik í deildinni þegar Fletcher hefur verið á skotskónum.Newcastle 1-0 QPR 1-0 Shole Ameobi (81.) Shola Ameobi fagnaði nýfengnu landsliðssæti hjá Nígeríu með því að tryggja Newcastle sigur gegn QPR. Ameobi skoraði eina markið níu mínútum fyrir leikslok og batt enda á taplausa hrinu QPR undir stjórn Harry Redknapp.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Sjá meira