Enski boltinn

Bellamy tryggði Cardiff þrjú stig

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Craig Bellamy skorar sigurmarkið.
Craig Bellamy skorar sigurmarkið. Nordicphotos/Getty
Heiðar Helguson var í byrjunarliði Cardiff og Aron Einar Gunnarsson kom inná sem varamaður þegar liðið lagði Leicester 1-0 á útivelli í Championship-deildinni.

Craig Bellamy skoraði eina mark leiksins á 25. mínútu. Heiðari var skipt af velli á 52. mínútu en Aron Einar kom inná á 76. mínútu.

Cardiff er því áfram í toppsæti deildarinnar. Liðið hefur þriggja stiga forskot á Hull.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×