Everton og Sunderland þurfa að mætast aftur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2012 12:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Everton og Sunderland þurfa að spila annan leik í átta liða úrslitum enska bikarsins eftir að liðin gerðu 1-1 jafntefli á Goodison Park í dag. Sunderland komst yfir í upphafi leiks en Everton jafnaði fljótlega og var síðan miklu betra liðið í seinni hálfleiknum. Everton-mönnum tókst hinsvegar ekki að skora og Sunderland fær því annan leik á heimavelli sínum. Sunderland byrjaði leikinn vel og bakvörðurinn Phillip Bardsley kom liðinu í 1-0 á 12. mínútu með þrumuskoti af löngu færi eftir að Jack Colback tók stutta aukaspyrnu út á kanti. Leikmenn Everton sofnuðu á verðinum en það bjóst enginn við að Bardsley myndi reyna þetta. Everton vaknaði við markið og Tim Cahill var búinn að jafna leikinn eftir ellefu mínútur. Tim Cahill skallaði þá fram skalla Nikica Jelavic eftir flotta fyrirgjöf frá Leighton Baines. Fyrri hálfleikinn var frábær skemmtun enda mikill hraði í leiknum en leikurinn róaðist talsvert í seinni hálfleiknum. Everton liðið var sterkara liðið í seinni hálfleiknum en Sunderland varðist vel og freistaði þess að tryggja sér annan leik á sínum heimavelli. Everton átti að fá vítaspyrnu á 65. mínútu þegar John O'Shea varði skalla Nikica Jelavic með hendi. Andre Marriner dæmdi hinsvegar ekki neitt. Belgíski markvörðurinn Simon Mignolet varði frábærlega í tvígang á 87. mínútu og bjargaði sínum mönnum í Sunderland. Fyrst varði hann glæsilega skalla John Heitinga og síðan náði hann einnig að verja frá Nikica Jelavic sem fékk boltann í dauðafæri eftir frákastið.
Mest lesið Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira