Benitez byrjar á meistaraslag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. nóvember 2012 10:00 Rafael Benitez er tekinn við stjórn Evrópumeistara Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Rafael Benitez, fyrrum stjóri Liverpool, er kominn aftur í enska boltann en hann var á fimmtudagskvöldið ráðinn knattspyrnustjóri Chelsea. Hans hlutverk verður að rétta af bláu skútuna hans Roman Abramovich en Chelsea hefur ekki unnið leik í ensku úrvalsdeildinni síðan 20. október og er við það að falla úr leik í Meistaradeild Evrópu. Hinn moldríki Abramovich er ekki þekktur fyrir að sýna knattspyrnustjórum sínum þolinmæði en Benitez mun þó starfa undir þeim formerkjum að ráðningin sé aðeins tímabundin. Samningurinn sem hann undirritaði gildir aðeins til loka tímabilsins. Benitez var staddur á ráðstefnu í Abu Dhabi þegar að Roberto Di Matteo var rekinn að næturlagi – nokkrum klukkutímum eftir að Chelsea tapaði fyrir Juventus á þriðjudagskvöldið. Næstu nótt flaug Benitez til Englands og sat strax á fimmtudagskvöldið fyrir svörum blaðamanna sem nýr stjóri Chelsea. Verkefni hans verður ærið. Fregnir hafa borist af því að stuðningsmenn Chelsea séu allt annað en sáttir við þennan ráðahag og því þarf Benitez að byrja vel. Fyrsti leikurinn er ekki af auðveldara taginu en hann fær á morgun Englandsmeistara Manchester City í heimsókn. City er þar að auki á toppi deildarinnar og eina taplausa liðið í öllum fjórum atvinnumannadeildum Englands. „Stuðningsmennirnir vilja stjóra sem getur unnið titla. Og við eigum það sameiginlegt að öll viljum við vinna hvern einasta leik," sagði hinn 52 ára gamli Benitez, óhræddur við verkefnin sem er fram undan. Nú þegar er Chelsea fjórum stigum á eftir City og má liðið helst ekki við því að bilið aukist enn frekar. Því er ekki að neita að Benitez hefur náð árangri. Hann varð spænskur meistari tvisvar, enskur bikarmeistari og vann þar að auki bæði Meistaradeild Evrópu og UEFA-bikarinn sáluga. Flestir komu á árunum 2000 til 2005 og því kannski margir sem spyrja hvort hann hafi enn það sem til þurfi. Hann fær tækifæri nú til að sýna það og sanna.Áhrif breytinga á lið Chelsea Fjórir þjálfarar hafa tekið við Chelsea á miðju tímabili. Þar af var einn þeirra við völd í aðeins einn leik. Chelsea hefur unnið sinn fyrsta leik í síðustu þrjú skipti sem nýr maður hefur tekið við á miðju tímabili.Fyrsti leikur Roberto Di Matteo 1-0 sigur á Stoke City (10. mars 2012) Stig í fyrstu 5 deildarleikjum: 10 stigFyrsti leikur Guus Hiddink 1-0 sigur á Aston Villa (21. febrúar 2009) Stig í fyrstu 5 deildarleikjum: 12 stigEini leikur Ray Wilkins 3-1 sigur á Watford í enska bikarnum (14. febrúar 2009) Guus Hiddink tók síðan við liðinu.Fyrsti leikur Avram Grant 0-2 tap fyrir Manchester United (23. september 2007) Stig í fyrstu 5 deildarleikjum: 10 stig
Enski boltinn Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti Fleiri fréttir Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Sjá meira