Tevez ekki til AC Milan | Lokað fyrir félagaskipti á Ítalíu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2012 18:44 Nordic Photos / Getty Images
Þó svo að félagaskipti verði enn heimil í Englandi til klukkan 23 í kvöld er búið að loka fyrir félagaskipti á Ítalíu. Það þýðir að Carlos Tevez, leikmaður Manchester City, fer ekki til AC Milan, eins og sögusagnir voru um. Í gærkvöldi staðfestu forráðamenn AC Milan að félagið myndi ekki kaupa Tevez að þessu sinni en í hádeginu í dag bárust skyndilega fregnir af því að Milan-menn ætluðu sér þrátt fyrir allt að reyna að klófesta Argentínumanninn. Ástæðan fyrir þessu mun hafa verið sú að Brasilíumaðurinn Pato hafi verið viljugur að ganga til liðs við Paris Saint-Germain, sem hann hafði áður hafnað. En ekkert varð af því og ekkert varð af félagaskiptum Tevez til Ítalíu, í bili að minnsta kosti. En hvort að Tevez fari frá Manchester City fyrir klukkan 23 í kvöld verður að koma í ljós.
Tengdar fréttir City hafnaði boði Liverpool um skipti á Carroll og Tevez Á vefsíðu Guardian er fullyrt að Liverpool hafi gert Manchester City tilboð um skipti á sóknarmönnunum Andy Carroll og Carlos Tevez. City hafi hins vegar hafnað tilboðinu. 29. janúar 2012 12:30 AC Milan að reyna að næla í Tevez á síðustu klukkutímunum Framtíð Carlos Tevez gæti ráðist áður en félagsskiptaglugginn lokar í kvöld því nýjustu fréttirnar frá Ítalíu benda til þess að AC Milan ætlar að gera eina lokatilraun að næla í argentínska framherjann á síðustu klukkutímunum. 31. janúar 2012 13:30 Umboðsmaður Tevez: Carlos verður hjá Manchester City fram á sumar Carlos Tevez er ekkert á förum frá Manchester City í janúarglugganum ef marka má nýtt viðtal við umboðsmanninn hans Kia Joorabchian. City hefur verið í viðræðum við Inter Milan, AC Milan og Paris St Germain en ekkert þeirra er tilbúið að borga þær 25 milljónir punda sem ensku bikarmeistararnir vilja fá fyrir Argentínumanninn. 27. janúar 2012 16:45 Hughes: QPR gæti hjálpað City fengi liðið Tevez á láni Mark Hughes, stjóri Heiðars Helgusonar hjá Queens Park Rangers, er viss um að það kæmi sér vel fyrir Manchester City að lána Argentínumanninn Carlos Tevez til annars liðs í ensku úrvalsdeildinni. QPR hefur eins og mörg önnur félög áhuga á því að fá Tevez á láni þar sem að það lítur út fyrir að City nái ekki að selja leikmanninn áður en félagsskiptaglugginn lokar í kvöld. 31. janúar 2012 10:45 Milan segir ólíklegt að Tevez komi Sagan langa um Carlos Tevez og Manchester City tekur líklega ekki enda á morgun. Forráðamenn AC Milan segja í það minnsta ólíklegt að Tevez komi til félagsins áður en lokað verður fyrir félagaskipti annað kvöld. 30. janúar 2012 22:35 Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Í bann fyrir að kasta flösku í barn Körfubolti Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Enski boltinn HM í pílu: Littler flaug áfram og kvöldinu lauk með spennutrylli Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Sjá meira
City hafnaði boði Liverpool um skipti á Carroll og Tevez Á vefsíðu Guardian er fullyrt að Liverpool hafi gert Manchester City tilboð um skipti á sóknarmönnunum Andy Carroll og Carlos Tevez. City hafi hins vegar hafnað tilboðinu. 29. janúar 2012 12:30
AC Milan að reyna að næla í Tevez á síðustu klukkutímunum Framtíð Carlos Tevez gæti ráðist áður en félagsskiptaglugginn lokar í kvöld því nýjustu fréttirnar frá Ítalíu benda til þess að AC Milan ætlar að gera eina lokatilraun að næla í argentínska framherjann á síðustu klukkutímunum. 31. janúar 2012 13:30
Umboðsmaður Tevez: Carlos verður hjá Manchester City fram á sumar Carlos Tevez er ekkert á förum frá Manchester City í janúarglugganum ef marka má nýtt viðtal við umboðsmanninn hans Kia Joorabchian. City hefur verið í viðræðum við Inter Milan, AC Milan og Paris St Germain en ekkert þeirra er tilbúið að borga þær 25 milljónir punda sem ensku bikarmeistararnir vilja fá fyrir Argentínumanninn. 27. janúar 2012 16:45
Hughes: QPR gæti hjálpað City fengi liðið Tevez á láni Mark Hughes, stjóri Heiðars Helgusonar hjá Queens Park Rangers, er viss um að það kæmi sér vel fyrir Manchester City að lána Argentínumanninn Carlos Tevez til annars liðs í ensku úrvalsdeildinni. QPR hefur eins og mörg önnur félög áhuga á því að fá Tevez á láni þar sem að það lítur út fyrir að City nái ekki að selja leikmanninn áður en félagsskiptaglugginn lokar í kvöld. 31. janúar 2012 10:45
Milan segir ólíklegt að Tevez komi Sagan langa um Carlos Tevez og Manchester City tekur líklega ekki enda á morgun. Forráðamenn AC Milan segja í það minnsta ólíklegt að Tevez komi til félagsins áður en lokað verður fyrir félagaskipti annað kvöld. 30. janúar 2012 22:35