Enski boltinn

Julio Cesar á leið til QPR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Markvörðurinn Julio Cesar hefur samþykkt fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið QPR.

QPR staðfesti þetta í kvöld og sagði að félagaskipti hans væru háð því að hann fengi vegabréfsáritun til Englands.

Cesar er þaulreyndur markvörður sem hefur verið á mála hjá Inter í Ítalíu í sjö ár og unnið á þeim tíma fimm meistaratitla og Meistaradeild Evrópu einu sinni. Hann á að baki 64 leiki með landsliði Brasilíu.

Forráðamenn QPR hafa látið mikið til sín taka á leikmannamarkaðnum síðustu daga og vikur og hafa enn frest til föstudags að styrkja leikmannahópinn fyrir átök vetrarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×