Enski boltinn

Walcott verður ekki seldur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Samkvæmt enskum fjölmiðlum verður Theo Walcott áfram í herbúðum Arsenal um sinn eftir að aðilar komust að samkomulagi um það.

Walcott neitaði að skrifa undir nýjan samning við félagið fyrr í vikunni og hitti í dag Arsene Wenger, stjóra Arsenal.

Núverandi samningur hans rennur út í lok tímabilsins og hefur hann verið orðaður við Manchester City og Liverpool.

Lokað verður fyrir félagaskipti á föstudagskvöld og var jafnvel talið að Arsenal myndi selja kappann til að fá sem mest fyrir hann nú. En eftir fund Wenger og Walcott í dag mun liggja fyrir að sá síðarnefndi verði áfram í herbúðum Arsenal, um sinn að minnsta kosti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×