Erlent

6 kílóa barn fæddist í Bandaríkjunum

Asher Stewardson
Asher Stewardson mynd/AP
Kona í Bandaríkjunum eignaðist stærðarinnar pilt eftir að hafa haft hríðir í 6 klukkustundir. Barnið vó rúmlega 6 kíló en slíkt er afar sjaldgæft.

Pilturinn Asher Stewardson fæddist í síðustu viku í Iowa í Bandaríkjunum. Við fæðingu var lengd hans rúmir 60 sentímetrar.

Fæðingarlæknar á spítalanum í Des Moines segja að aðeins 0.1% af öllum kornabörnum séu þyngri en 5 kíló.

Foreldrar piltsins vildu ekki að keisaraskurður yrði framkvæmdur og því kom Asher með hefðbundnum hætti í heiminn. Enn fremur vildi móðirin ekki fá mænudeyfingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×