Van Persie skoraði gegn Arsenal og United fór á toppinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2012 12:15 Robin van Persie. Mynd/Nordic Photos/Getty
Robin van Persie skoraði í 2-1 sigri á Manchester United á Arsenal á Old Trafford í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni en United-menn komust í toppsætið með þessum sigri. Chelsea getur reyndar endurheimt efsta sætið með sigri á Swansea á eftir. Arsenal-liðið endaði leikinn manni færri eftir að Jack Wilshere fékk sitt annað gula spjald á 69. mínútu. Robin van Persie er nú markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með átta mörk í fyrstu tíu deildarleikjunum með United en hann hefur nú skoraði á móti öllum félögum í ensku úrvalsdeildinni. Það var kannski skrifað í skýin að hann skyldi skora á móti sínum gömlu félögum í Arsenal. Manchester United komst í 1-0 strax í byrjun leiks. Robin van Persie fékk þá gjöf frá Thomas Vermaelen eftir aðeins tvær mínútur og 38 sekúndur og menn þurftu því ekki að bíða lengi eftir því að hann refsaði sínum gömlu félögum. Vermaelen missti klaufalega frá sér boltann og Van Persie skoraði með viðstöðulausu hægri fótar skoti. Wayne Rooney fékk tækifæri til að koma United í 2-0 á lokamínútu fyrri hálfleiks en skaut þá framhjá úr vítaspyrnu sem dæmd var á Santi Cazorla fyrir að setja hendi fyrir fyrirgjöf hjá Ashley Young. Robin van Persie fékk líka dauðafæri í seinni hálfleik en tókst ekki að bæta við marki þar sem að Vito Mannone varði frábærlega frá honum. Patrice Evra kom United í 2-0 með skalla eftir fyrirgjöf Wayne Rooney á 67. mínútu og tveimur mínútum síðar fékk Jack Wilshere sitt annað gula spjald fyrir brot á Evra. Santi Cazorla minnkaði muninn með skoti úr teignum á fjórðu mínútu í uppbótartíma en það var síðasta spyrna leiksins.
Enski boltinn Mest lesið Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira