QPR vann sinn fyrsta leik á tímabilinu - öll úrslitin í enska Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2012 14:45 Adel Taarabt fagnar öðru marka sinna í dag. Mynd/Nordic Photos/Getty
Queens Park Rangers vann sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu og komst upp úr botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á Fulham í dag. Adel Taarabt skoraði bæði mörk QPR í leiknum sem færðu Harry Redknapp sinn fyrsta sigur sem stjóri liðsins. Queens Park Rangers var búið að gera jafnteli í fyrstu þremur leikjum sínum undir stjórn Harry Redknapp sem tók við liðinu af Mark Hughes. Seinna mark Adel Taarabt var af glæsilegri gerðinni. Norwich City vann sinn þriðja leik í röð og er komið upp í sjöunda sæti eftir 2-1 heimasigur á Wigan. Wes Hoolahan skoraði sigurmarkið eftir sendingu frá Anthony Pilkington sem skoraði einmitt fyrra mark liðsins í leiknum. Norwich er með sex sigra og fjögur jafntefli í síðustu tíu leikjum sínum. Everton náði aðeins 1-1 jafntefli á móti Stoke sem gefur Tottenham tækifæri á því að taka af þeim fjórða sætið á morgun. Kenwyne Jones tryggði Stoke jafnteflið en Stoke hafði áður skorað sjálfsmark. Manchester United náði aftur sex stiga forskoti á toppnum eftir 3-1 sigur á Sunderland á Old Trafford. Nágrannarnir höfðu minnkað forystuna í þrjú stig með sigri á Newcastle fyrr í dag. Belgíumaðurinn Christian Benteke skoraði tvö marka Aston Villa liðsins í 3-1 sigri á Liverpool á Anfeld en Villa-liðið hefur verið á uppleið eftir skelfilega byrjun. Villa-menn léku í dag sinn fimmta leik í röð án þess að tapa.Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í dag:Newcastle - Manchester City 1-3 0-1 Sergio Agüero (10.), 0-2 Javi García (39.), 1-2 Demba Ba (51.), 1-3 Yaya Touré (78.)Liverpool - Aston Villa 1-3 0-1 Christian Benteke (29.), 0-2 Andreas Weimann (40.), 0-3 Christian Benteke (51.),l 1-3 Steven Gerrard (87.)Manchester United - Sunderland 3-1 1-0 Robin van Persie (16.), 2-0 Tom Cleverley (19.), 3-0 Wayne Rooney (59.), 3-1 Fraizer Campbell (72.)Norwich - Wigan 2-1 1-0 Anthony Pilkington (15.), 1-1 Shaun Maloney (51.), 2-1 Wes Hoolahan (64.)Queens Park Rangers - Fulham 2-1 1-0 Adel Taarabt (52.), 2-0 Adel Taarabt (68.), 2-1 Mladen Petrić (88.)Stoke - Everton 1-1 0-1 Sjálfsmark Ryan Shawcross (36.), 1-1 Kenwyne Jones (52.)
Enski boltinn Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira