Allt botnfrosið í samskiptum Wenger og Bould 13. desember 2012 12:00 Steve Bould og Arsene Wenger. Nordic Photos / Getty Images
Það er mótvindur í herbúðum enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal þessa dagana. Liðið féll úr keppni gegn D-liði Bradford í deildabikarnum í þessari viku og samskipti Arsene Wenger knattspyrnustjóra og aðstoðarþjálfarans Steve Bould eru ekki upp á það allra besta. Stewart Robson, fyrrum leikmaður Arsenal, gagnrýndi Wenger harkalega í gær og sagði liðið á rangri leið undir stjórn Wenger. Bould tók við af Pat Rice sem hægri hönd Wenger og hlutverk Bould er að vinna með varnarleik liðsins og stoppa í þau göt. Sögusagnir er um að Bould sé alls ekki að sinna starfi sínu og hafa leikmenn gagnrýnt hve illa er staðið að æfingum hvað varðar varnarleik liðsins. Í því samhengi má nefna að Bould er með um 300 milljónir kr. í árslaun hjá Arsenal Í frétt Daily Mail er greint frá því að samstarf Wenger og Bould sé botnfrosið. Á æfingu liðsins daginn fyrir 2-0 tap liðsins gegn Swansea á dögunum stjórnaði þrekþjálfarinn Tony Colbert æfingunni í fjarveru Wengers en Bould var hvergi sjáanlegur. Robson, fyrrum leikmaður Arsenal, er harðorður í garð Wenger í viðtali við Daily Mail. „Arsene Wenger er með gríðarlegt sjálfsálit, og hann er einræðisherra þegar kemur að Arsenal. Hann leyfir Steve Bould ekki að gera það sem hann langar til. Wenger hefur náð að búa til góða leikmenn en hann gerði það síðast fyrir sex eða sjö árum. Í dag þá verða leikmenn verri undir hans stjórn. Ég sá Gervinho leika fyrir Fílabeinsströndina áður en hann kom til Arsenak, hann var góður þá. Það sama gildir um Arshavin þegar hann lék fyrir Rússa og Zenit, og Aaron Ramsey þegar hann var með U21 árs landsliði Wales. Arsenal er að taka skref aftur á bak og margir leikmenn eru einnig að taka skref aftur á bak," sagði Robson.
Enski boltinn Mest lesið Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Ótrúleg tölfræði Jokic Körfubolti Enn kvarnast úr liði Blika Íslenski boltinn „Ég mun ekki keppa við Rússa á meðan stríð er í gangi“ Sport Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Jafnt í stórleiknum Fótbolti Dagskráin í dag: Pílukast og Íslandsmeistarar Sport Spennutryllir eftir tvö burst Sport Jöfnuðu 128 ára gamalt met Enski boltinn Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Sjá meira