Enski boltinn

Sao Paulo hafnaði risatilboði Man Utd í Lucas Moura

Hinn 19 ára gamli Lucas Moura er eftirsóttur leikmaður.
Hinn 19 ára gamli Lucas Moura er eftirsóttur leikmaður. AP
Forráðamenn Sao Paulo í Brasilíu eru sagðir hafa hafnað 30 milljóna punda tilboði Manchester United í brasilíska undrabarnið Lucas Moura sem er aðeins 19 ára og mjög eftirsóttur.

Sao Paulo liðið er í miklum fjárhagsvandræðum og voru tilbúnir að selja Moura en virðist hafa breytt um skoðun þrátt fyrir 6 milljarða kr. tilboð frá enska úrvalsdeildarliðinu.

Manchester United hefur keypt tvo leikmenn í sumar Shinji Kagawa og Nick Powell en liðið er á æfingarferðalagi í Suður-Afríku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×