Er John Terry á leið til Valencia? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. október 2012 14:00 Nordic Photos / Getty Images
Spænskur umboðsmaður hefur fullyrt að hann hafi átt í viðræðum við Valencia um þann möguleika að John Terry gangi til liðs við félagið. Þetta kemur fram í fjölmiðlum á Spáni og Englandi. Samkvæmt Sky Sports hefur Valencia staðfest að nafn Terry sé uppi á borði hjá þeim eftir að spænskur umboðsmaður bauð félaginu leikmanninn. Umboðsmaðurinn heitir Francois Gallardo og sagði í útvarpsviðtali á Spáni að Terry sé óánægður hjá Chelsea og hafi beðið um að yfirgefa félagið. „Tilboðið liggur á borðinu. Leikmaðurinn verður samningslaus í júní og ætlar ekki að framlengja samning sinn við Chelsaea af hinum ýmsu ástæðum. Hann vill koma til Spánar," sagði Gallardo. „Terry er að glíma við ýmis vandamál. Þeir eru að móðga hann og hann sættir sig ekki við það lengur. Hann bað um að fá að fara." „Þetta hefur verið í gangi í fimmtán daga og tveir fundir hafa þegar átt sér stað. Samingurinn er tilbúinn - hann er til átján mánaða með möguleika á einu ári til viðbótar. Ég held að hann muni taka því." Ef þetta reynist allt saman rétt er talið líklegt að Terry fari strax í janúar. Hann er nú að taka út fjögurra leikja leikbann með Chelsea sem hann fékk fyrir kynþáttaníð gagnvart Anton Ferdinand, leikmann QPR. Chelsea hefur einnig refsað honum fyrir athæfið en ekki greint frá því í hverju sektin felist með nákvæmum hætti.
Enski boltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Fleiri fréttir Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira