Liverpool deildabikarmeistari eftir vítakeppni Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 26. febrúar 2012 18:57 Kuyt og Suarez fagna marki þess fyrr nefnda. MYND:NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Liverpool tryggði sér deildarbikarmeistaratitilinn með því að leggja Cardiff af velli í vítaspyrnukeppni. Staðan var jöfn 1-1 eftir venjulegan leiktíma og enn var jafnt, 2-2, að lokinni framlengingu. Liverpool skoraði úr þremur af fimm vítum sínum á meðan Cardiff nýtti aðeins tvö og því var það Liverpool sem fagnaði í leikslok. Joe Mason skoraði fyrsta mark leiksins á 18. mínútu og Martin Skrtel jafnaði metin á 59. mínútu og þar við sat þrátt fyrir að Liverpool fengi urmul af færum til að tryggja sér sigur og því þurfti að framlengja. Allt benti til þess að Dirk Kuyt væri að tryggja Liverpool sigur í framlengingunni þegar hann skoraði á 108. mínútu en miðvörðurinn Ben Turner sá til þess að leikurinn færi í vítaspyrnukeppni þegar hann skoraði af stuttu færi á 118. mínútu. Cardiff sigraði tvær vítaspyrnukeppnir á leið sinni í úrslitaleikinn en örþreyttir leikmenn liðsins áttu í miklum erfiðleikum frá vítapunktinum í kvöld og klúðruðu þremur vítum af fimm á meðan Liverpool skoraði úr þremur þrátt fyrir tvær af fyrstu þrem færu forgörðum. Glen Johnson skoraði úr fimmta víti Liverpool og það kom í hlut Anthony Gerrard skjóta framhjá úr síðasta víti Cardiff. Liverpool landaði þar með fyrsta titli félagsins frá því árið 2006 þegar liðið sigraði enska bikarinn. Kenny Dalglish hefur þar með unnið báða bikarana og deildina á Englandi, bæði sem leikmaður og þjálfari en það hefur enginn annar afrekað.
Enski boltinn Mest lesið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Hættur aðeins þrítugur Golf Dagskráin í dag: Kæst yfir NFL, pílu og enska boltanum Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Fótbolti Fleiri fréttir Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Sjá meira