Enski boltinn

Sterling búinn að framlengja við Liverpool

Ungstirnið Raheem Sterling skrifaði í dag undir nýjan samning við Liverpool. Um langtímasamning er að ræða og talið að hann sé til fimm ára.

Hinn 18 ára Sterling kom til félagsins frá QPR árið 2010. Hann er himinlifandi með nýja samninginn.

"Ég er rétt að byrja minn feril og á eftir að gera mikið. Vonandi fer ég almennilega í gang eftir áramótin."

Bæði Man. Utd og Arsenal sýndu leikmanninum áhuga en hann ákvað að vera áfram hjá Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×