Enski boltinn

Manchester United og Swansea skildu jöfn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd/Nordic Photos/Getty
Manchester United og Swansea gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og voru úrslitin nokkuð óvænt.

Patrice Evra skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Manchester United eftir rúmlega korters leik þegar hann skallaði boltann í netið.

Það var síðan Michu sem jafnaði metin eftir hálftíma leik, en mikill darraðardans var inn í vítateig United í aðdraganda leiksins.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og niðurstaðan 1-1 jafntefli. Manchester United er í efsta sæti deildarinnar með 43 stig, fjórum stigum á undan Manchester City. Swansea er í 11. sæti með 24 stig.

Staðan í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×