Enski boltinn

Taarabt fer ekki á Afríkumótið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Adel Taarabt í leik með QPR.
Adel Taarabt í leik með QPR. Mynd / Getty Images
Adel Taarabt, leikmaður QPR, mun ekki fara á Afríkumótið í janúar með Marokkó en hann var einfaldlega ekki valinn í landsliðið.

Nýráðinn stjóri QPR, Harry Redknapp, hefur haft miklar áhyggjur af því að missa þennan snjalla leikmann í keppnina en þær áhyggjur voru eftir allt saman af ástæðulausu.

QPR er sem stendur í næstneðsta sæti deildarinnar og þurfa því á öllum sínum leikmönnum að halda í hverjum einasta leik, framundan er hörð fallbarátta hjá klúbbnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×