Enski boltinn

Stuðningsmaður Man City bað Ferdinand afsökunar - níu aðilar kærðir

Joe Hart stöðvar hér Matthew Stott áður en hann komst að Rio Ferdinand. Carlos Tevez er við öllu viðbúinn.
Joe Hart stöðvar hér Matthew Stott áður en hann komst að Rio Ferdinand. Carlos Tevez er við öllu viðbúinn. Nordic Photos / Getty Images
Níu aðilar hafa verið kærðir fyrir ýmis atvik sem áttu sér stað á leik Manchester City og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór í gær. Tveir þeirra fóru inn á leikvöllinn og ógnuðu þar leikmönnum Man Utd en alls hafa fjórir verið handteknir. Rio Ferdinand leikmaður Man Utd fékk skurð á augabrún eftir að smápening var kastað í andlit hans og það er ljóst að fjölmörg atvik sem komu þarna upp verða rannsökuð enn frekar hjá enska knattspyrnusambandinu.

Matthew Stott, 21 árs gamall stuðningsmaður Man City, hefur beðið Rio Ferdinand afsökunar á framferði sínu þegar hann hljóp inn á völlinn – en Joe Hart markvörður Man City gekk í það að stöðva Stott áður en hann gerði meira af sér.

Man City hefur beðist formlega afsökunar á hegðun stuðningsmanna liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×