Enski boltinn

Aston Villa í undanúrslit | Sætur sigur Lambert

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Andreas Weimann var í aðalhlutverki hjá Villa í kvöld.
Andreas Weimann var í aðalhlutverki hjá Villa í kvöld. Nordicphotos/Getty
Aston Villa tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum enska deildabikarsins í knattspyrnu með 4-1 útisigri á Norwich.

Heimamenn komust yfir á 19. mínútu á Carrow Road með marki Steven Morrison. Ástralinn Brett Holman jafnaði tveimur mínútum síðar og staðan jöfn í hálfleik.

Gestirnir frá Birmingham tóku völdin í síðari hálfleik og skoruðu þrisvar. Austurríkismaðurinn Andreas Weimann skoraði tvö mörk á sex mínútum áður en Christian Benteke innsiglaði sigur Villa.

Lærisveinar Paul Lambert eru því komnir í undanúrslit en Lambert stýrði Norwich á síðustu leiktíð. Villa varð fyrir áfalli í fyrri hálfleik þegar Darren Bent fór meiddur af velli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×