Manchester City nú bara þremur stigum á eftir United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2012 12:15 Mynd/Nordicphotos/Getty
Manchester City minnkaði forskot nágrannanna í Manchester United á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í þrjú stig með því að vinna sannfærandi 3-1 sigur á Newcastle á St. James Park í hádegisleiknum í enska í dag. Leikurinn var fjögur og skemmtilegur þar sem bæði lið fengu mörg færi til að bæta við mörkum en City-menn voru mun sterkari og unnu mikilvægan sigur í toppbaráttunni ekki síst í framhaldinu af tapi liðsins fyrir Manchester United um síðustu helgi. Það hefur hinsvegar lítið gengið hjá Newcastle-liðinu að undanförnu en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu átta deildarleikjum sínum og er í 14. sæti deildarinnar. Newcastle byrjaði leikinn mjög vel og Joe Hart þurfti að hafa sig allan við til að verja frá Demba Ba strax á 2. mínútu leiksins. Newcastle ógnaði Manchester City í upphafi leiks en gestirnir áttu svar við því og breyttu leiknum með því að skora fyrsta markið. Sergio Agüero kom þá City-liðinu í 1-0 strax á 10. mínútu eftir að hafa fengið boltann á silfurfati frá Samir Nasri og rent honum í autt markið. Yaya Toure átti mikinn þátt í markinu því hann átti stungusendinguna inn á Nasri. Javi García bætti síðan við öðru marki á 39. mínútu með skalla eftir hornspyrnu frá David Silva og þannig var staðan í hálfleik. Demba Ba minnkaði muninn í 2-1 á 51. mínútu með skalla eftir sendingu frá Fabricio Coloccini en City náði þá ekki að hreinsa almennilega frá eftir hornspyrnu. Papiss Cissé fékk mjög gott færi skömmu síðar en skaut yfir og Newcastle náði ekki að jafna leikinn. Yaya Touré innsiglaði síðan sigur City með því að skora þriðja markið á 78. mínútu eftir að hafa fengið sendingu frá Pablo Zabaleta.
Enski boltinn Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Íslenski boltinn Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira