Enski boltinn

Markalaust á The Hawthorns

Mynd/NordicPhotos/Getty
West Brom og West Ham gerðu markalaust jafntefli á heimavelli West Brom í síðdegis leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Leiksins verður ekki minnst fyrir glæsileg tilþrif en öllu meira fjör var í seinni hálfleik eftir bragðdaufan fyrri hálfleik.

West Brom er þar með komið í 27 stig, líkt og Everton í fimmta til sjötta sæti en West Ham náði Swansea að stigum með 23 stig í tíunda til ellefta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×