Enski boltinn

Ungur stuðningsmaður Everton virkar hræddur við Suarez

"Hvað ert þú að gera hérna? Ég var að bíða eftir Fellaini," gæti drengurinn verið að hugsa.
"Hvað ert þú að gera hérna? Ég var að bíða eftir Fellaini," gæti drengurinn verið að hugsa.
Knattspyrnumenn gefa af sér um jólin og leikmenn Liverpool eru þar engin undantekning. Leikmenn liðsins virtust þó hafa hrætt lítinn, veikan strák á spítala í Liverpool.

Aðalmynd fréttirnar segir meira en þúsund orð. Drengurinn, sem er stuðningsmaður Everton, horfir á Luis Suarez, sem skartar jólasveinahúfu, skelfingu lostinn.

Suarez og félagar glöddu öll börnin á spítalanum í Liverpool og breytti engu hvaða lið þeir styðja. Þau voru ekki öll hrædd við jólasveininn Suarez sem dró hvergi af sér við að kæta krakkana.

Skoða má fleiri myndir af spítalaheimsókn leikmanna Liverpool hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×