West Ham sigraði Chelsea | Tvö stig í þremur leikjum Benitez Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. desember 2012 01:34 Mata og Torres brostu í fyrri hálfleik en ekki þess síðari. Nordicphotos/Getty
West Ham gerði sér lítið fyrir og lagði Chelsea að velli 3-1 á heimavelli sínum Boylen Ground í dag. Chelsea hafði forystu í hálfleik en þrjú mörk í síðari hálfleik tryggðu West Ham sætan sigur. Gestirnir náðu forystunni á 13. mínútu þegar Juan Mata skoraði eftir fallegan undirbúning landa síns Fernando Torres. Fyrsta mark Chelsea undir stjórn Rafael Benitez og útlitið gott. Heimamenn jöfnuðu metin eftir stundarfjórðung í síðari hálfleik. Há sending Matt Jarvis barst inn á teig gestanna þar sem Carlton Cole hafði betur í baráttu við Branislav Ivanovic og skallaði knöttinn í netið. Ivanovic fannst á sér brotið og virtist varnarmaðurinn hafa ýmislegt til síns máls. Markið gjörbreytti gangi leiksins. Juan Mata skaut í tréverkið úr aukaspyrnu en þá tóku heimamenn við. Fyrst skoraði Momo Diame eftir fínan undirbúning Carlton Cole á 86. mínútu áður en varamaðurinn Modibo Maiga fylgdi eftir skoti Matthew Taylor á lokamínútunni. Fernando Torres fékk dauðafæri til að minnka muninn í viðbótartíma en skalli hans af markteig fór beint á Jaaskelainen í marki Hamranna. Spánverjanum virðist fyrirmunað að skora en um tólf klukkustundir eru liðnar frá síðasta marki Torres í búningi Chelsea. West Ham lyfti sér upp í 7. sæti með sigrinum. Liðið hefur 22 stig en Chelsea situr í 3. sæti með 26. stig.
Enski boltinn Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira