Sálfræðistríðið fyrir slaginn um Manchester hafið - Mancini hrósar Man Utd 7. desember 2012 13:30 Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Englandsmeistaraliðs Manchester City, mun bíða fram á síðustu stundu með liðsvalið fyrir stórleikinn gegn Manchester United á sunnudaginn. Nordic Photos / Getty Images
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Englandsmeistaraliðs Manchester City, mun bíða fram á síðustu stundu með liðsvalið fyrir stórleikinn gegn Manchester United á sunnudaginn. Óvíst er hvort David Silva leikmaður Man City verði leikfær en Mancini vonast til þess að hann geti gefið Spánverjanum tækifæri í þessum mikilvæga leik sem fram fer á Etihad Stadium heimavelli Man City. Það er ljóst að Aleksandar Kolarov verður ekki með Man City í þessum leik. Silva tognaði á aftanverðu læri og hann lék ekki með Man City gegn Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu í vikunni. „Við munum reyna allt sem við getum til að David geti verið með," sagði Mancini við fjölmiðla eftir æfingu liðsins. Gael Clichy og James Milner eru að jafna sig eftir meiðsli. Clichy á ökkla og Milner í aftanverðum lærvöðva. „Við tökum ekki óþarfa áhættu með leikmenn okkar, það er mikil törn framundan í lok desember og við þurfum að leyfa leikmönnum að jafna sig," bætti hann við. Manchester United er á toppi deildarinnar með 36 stig, þremur stigum fyrir ofan Man City. Markatala Englandsmeistaraliðsins er betri og með sigri myndi Man City ná efsta sætinu. Vincent Kompany tryggði Man City sigurinn gegn Manchester United þegar liðin áttust við á Etihad Stadium undir lok síðasta keppnistímabils. „Þeir hafa efni á að tapa því þeir eru þremur stigum fyrir ofan – við getum ekki leyft okkur að tapa í þessari stöðu," bætti Mancini við en hann fagnaði sigri í báðum viðureignunum gegn Man Utd á síðustu leiktíð í úrvalsdeildinni. Man City vann stórsigur, 6-1, þegar liðin mættust á Old Trafford heimavelli Man Utd. „Eins og staðan er núna þá er Man Utd betri en við. Við höfum bara verið í þessari baráttu í tvö ár. Man Utd hefur barist um titla í 20 ár og þeir hafa unnið allt sem í boði er á síðustu 15 árum. Það er ekki hægt að breyta öllu á tveimur eða þremur árum. Við þurfum lengri tíma," sagði Mancini. Leikur Man City og Man Utd verður sýndur á Stöð 2 sport 2 | HD | og hefst leikurinn kl. 13.30 á sunnudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Ótrúleg tölfræði Jokic Körfubolti Enn kvarnast úr liði Blika Íslenski boltinn Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Jafnt í stórleiknum Fótbolti „Ég mun ekki keppa við Rússa á meðan stríð er í gangi“ Sport Gray hetja Tottenham Enski boltinn Jöfnuðu 128 ára gamalt met Enski boltinn Spennutryllir eftir tvö burst Sport Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Sjá meira