Everton og Liverpool skildu jöfn á Goodison Park Stefán Árni Pálsson skrifar 28. október 2012 00:01
Everton og Liverpool mættust í nágrannaslag á Goodison Park í Liverpool og var um magnaðan leik að ræða. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Liverpool byrjaði leikinn betur og komust yfir eftir tæplega korters leik. Luis Suarez, leikmaður Liverpool, fékk boltann inní teig eftir mikið klafs og skaut boltanum í Leighton Baines, leikmann Everton, og í netið. Luis Suarez var síðan aftur á ferðinni stuttu síðar þegar hann skallaði boltann í netið eftir frábæra aukaspyrnu frá Steven Gerrard. Leikmenn Everton voru ekki tilbúnir að leggja árar í bát og neituðu að gefast upp. Aðeins tveim mínútum eftir mark Suarez náði Everton að minnka muninn. Leon Osman, leikmaður Everton, skoraði fínt mark eftir slæm mistök frá Brad Jones, markverði Liverpool. Tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiksins náði Everton að jafna metin þegar Steven Naismith skoraði flott mark eftir frábæran undirbúning frá Marouane Fellaini. Staðan var því 2-2 í hálfleik. Síðari hálfleikurinn var mun rólegri en sá fyrri og náðu liðin ekki að skora fleiri mörk. Luis Suarez skoraði mark á 94. mínútu leiksins sem var dæmt af vegna rangstöðu, rangur dómur og Liverpool-menn rændir sigrinum. Niðurstaðan því jafntefli á Goodison Park. Liverpool er í 12. sæti deildarinnar með 10 stig en Everton er í því fjórða með 16 stig, fín byrjun hjá þeim bláklæddu á tímabilinu.
Enski boltinn Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Fleiri fréttir Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira