Enski boltinn

Rangstöðumörkin og öll hin mörk helgarinnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Javier Hernandez fagnar sigurmarki sínu.
Javier Hernandez fagnar sigurmarki sínu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Það var mikið um að vera í enska boltanum um helgina og eins og vanalega er hægt að nálgast myndbönd með öllum leikjum sem og eftirminnilegustu atvikum helgarinnar.

Umdeild atviku réðu úrslitum í þremur af stærstu leikjum helgarinnar því bæði Manchester United og Arsenal unnu sína leiki á rangstöðumarki og væntanlegt sigurmark Liverpool í Bítlaborgarbardaganum var dæmt af vegna rangstöðu. Það er hægt að sjá svipmyndir frá leik Manchester United og Chelsea hér og svo myndir frá leik Arsenal-manna hér.

Þeir sem misstu af enska boltanum um helgina eða vilja bara horfa á það helst aftur þá er hægt að fá flott yfirlit inn á Vísi.

Inn á Sjónvarpsvefnum á Vísi er nú hægt að sjá val á fimm flottustu mörkum helgarinnar sem og val á besta leikmanninum, liði umferðarinnar, flottustu markvörslunum og atviki helgarinnar.

Þar má einnig finna skemmtilegt atvik frá fyrri tímum auk þess sem hægt er að fá stutt yfirlit yfir það helsta sem gerðist í þessari umferð. Hér fyrir neðan eru tenglar á öll þessi myndbönd.

Fallegustu mörkin



Besti leikmaður helgarinnar



Lið umferðarinnar



Flottustu markvörslurnar



Atvik helgarinnar



Skemmtilegt sögubrot



Umferðin á fimm mínútum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×