Demba Ba tryggði Sunderland jafntefli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. október 2012 00:01 Yohan Cabaye fagnar marki sínu á Ljósvangi í dag. Nordic Photos / Getty Images
Sunderland og Newcastle skildu jöfn 1-1 í slagnum um Norður-England í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Demba Ba, framherji Newcastle, tryggði Sunderland eitt stig með sjálfsmarki skömmu fyrir leikslok. Gestirnir frá Newcastle komust yfir strax á þriðju mínútu. Mignolet varði þá skot Demba Ba út í teiginn þar sem Yohan Cabaye var staðsettur. Hnitmiðað skot Frakkans hafnaði neðst í markhorninu. Á 25. mínútu gerðist umdeild atvik. Cheik Tioté var vikið af velli með rautt spjald fyrir að setja takkana í sköflung Steven Fletcher. Tæklingin var ekki hörð en um klárt viljaverk að ræða svo Martin Atkinson lyfti rauða spjaldinu. Gestunum frá Newcastle tókst að halda forystu sinni þar til fimm mínútur voru til leiksloka. John O'Shea stökk þá manna hæst í baráttu um boltann í teig Newcastle eftir aukaspyrnu. Skalli Írans stefndi framhjá en Demba Ba varð fyrir því óláni að stýra boltanum í netið. Jafntefli líklega sanngjörn niðurstaða. Newcastle skaust upp fyrir Liverpool í 11. sæti deildarinnar en Sunderland situr áfram í 14. sæti.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Liverpool - Wolves | Jota heiðraður á Anfield Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Arsenal - Brighton | Halda Skytturnar toppsætinu? Enski boltinn Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir Liverpool - Wolves | Jota heiðraður á Anfield Arsenal - Brighton | Halda Skytturnar toppsætinu? Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Sjá meira