Solbakken um Björn Bergmann: Virðist alltaf meiðast í sófanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. september 2012 19:30 Björn Bergmann Sigurðarson í leik með Wolves. Mynd/Nordic Photos/Getty
Stale Solbakken, stjóri Wolves, hefur eins og landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck lítið getað notað Björn Bergmann Sigurðarson á tímabilinu en þessi stórefnilegi íslenski framherji er búinn að vera mikið meiddur. Björn Bergmann hefur sem dæmi ekki enn náð að spila landsleik fyrir Lagerbäck þótt að Svíinn hafi verið duglegur að velja hann í landsliðshópana sína. Björn Bergmann stóð sig vel á undirbúningstímabilinu með Wolves en hefur krækt í hver meiðslin á fætur öðrum eftir að b-deildin fór af stað. Hann hefur aðeins náð að spila í 47 mínútur í fyrstu fjórum umferðunum. Solbakken tjáði sig um Björn Bergmann og meiðsli hans í viðtali við Birminghammail. „Björn hefur verið mjög óheppinn með meiðsli. Þetta hafa ekki verið alvarleg meiðsli en þrjú mismundandi lítil meiðsli. Hann var frá æfingum í tíu daga vegna eins þeirra og missti úr viku vegna annarra meiðsla," sagði Stale Solbakken. „Mér fannst hann vera okkar besti maður á móti Southampton en eftir þann leik var hann frá vegna meiðsla í tíu daga. Hann kom inn á í 20 mínútur í einum leiknum og gerði góða hluti en meiddist síðan aftur," sagði Solbakken. „Ákefðin í enska boltanum hefur kannski eitthvað að segja en hann virðist þó ekki vera að meiðast í leikjunum sjálfum heldur eftir þá. Það er eins og hann meiðist við það að leggjast á sófann heima," sagði Solbakken en bætti strax við: „Þetta gæti líka verið það að hann gefi svo mikið í leikina að líkaminn hans ráði ekki nógu vel við það," sagði norski stjórinn hjá Úlfunum.
Enski boltinn Mest lesið Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum Fótbolti Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Íslenski boltinn De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Ísfirðingar geta andað léttar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Sjá meira