Ferguson: Ég græði ekkert á aukningu hlutafjár Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. ágúst 2012 09:00 Nordicphotos/Getty
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, sendi í dag breskum fjölmiðlum yfirlýsingu. Þar þvertekur hann fyrir að hagnast nokkuð á nýjustu fjárhagsaðgerðum Glazer-fjölskyldunnar, eigenda félagsins. Bandaríska fjölskyldan ætlar sér að auka hlutafé félagsins með því að skrá það í Kauphöllina í New York. Upphaflega virtust eigendurnir ætla að nota féð til þess að greiða niður miklar skuldir félagsins. Síðar hefur komið í ljós að stór hluti fjárins mun fara til háttsettra manna innan félagsins auk Glazer-fjölskyldunnar. Óhætt er að segja að tíðindin hafi ekki aukið vinsældir Glazer-fjölskyldunnar hjá stuðningsmönnum Manchester United sem voru litlar til að byrja með. Ferguson hefur þó margoft líst yfir ánægju sinni með bandarísku eigendurna og töldu ýmsir að stjórinn væri einn þeirra sem myndi hagnast á ráðabruggi Bandaríkjamannanna. Í yfirlýsingunni sem Ferguson sendi frá sér þvertekur hann fyrir það. Væri fjárhagslegur ávinningur allt sem hann hugsaði um hefði hann yfirgefið Old Trafford fyrir löngu. „Það er ekki eitt sannleikskorn í því að ég hagnist, beint eða óbeint, á aðgerðum Glazer-fjölskyldunnar," segir meðal annars í yfirlýsingunni. „Þegar öllu er á botninn hvolft sé ég um knattspyrnuþáttinn hjá félagsinu og til að geta gert það þarf stuðning að ofan. Glazer-fjölskyldan hefur leyft mér að sinna starfi mínu. Ég finn aðeins fyrir stuðningi frá þeim, engum afskiptum eða hindrunum," segir Ferguson sem er móðgaður yfir ásökunum um græðgi. „Ákvarðanir mínar og trú byggja ekki á hvað sé best fyrir mig fjárhagslega. Sú ásökun er móðgandi. Væri það tilfellið hefði ég yfirgefið Old Trafford fyrir löngu. Ég tjái mig um þetta mál því ég vil hvorki gefa fjölmiðlum eða öðrum tækifæri til að mynda gjá á milli mín og stuðningsmanna Manchester United. Ég hef varið 25 árum af lífi mínu í þágu félagsins. Það hefði ekki aðeins verið ómögulegt án stuðningsmannanna heldur sinni ég vinnu minni vegna stuðningsmannanna."
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sjá meira