Mun Owen Hargreaves leysa Barton af hjá QPR? - æfir með Heiðari og félögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júlí 2012 14:30 Owen Hargreaves fagnar eina marki sínu fyrir City. Mynd/Nordic Photos/Getty
Owen Hargreaves, fyrrum leikmaður Bayern München, Manchester United og Manchester City æfir þessa dagana með liði Queens Park Rangers en þessi 31 árs gamli miðjumaður er með lausan samning eftir að City-liðið lét hann fara. Hargreaves sló í gegn hjá Bayern á sínum tíma og vann sér sæti í enska landsliðinu en hefur verið plagaður af meiðslum síðan að hann kom til Manchester United árið 2007. Hann spilaði sem dæmi aðeins fjóra leiki á sínu eina tímabili með Manchester City. „Owen er að æfa með okkur en það er engin skuldbinding í gangi hvorki hjá okkur né honum. Hann er að reyna að halda sér í formi og við erum ánægðir að geta hjálpað honum," sagði Mark Hughes, stjóri QPR á heimasíðu félagsins. Mark Hughes er þegar búinn að ná í sjö nýja leikmenn til félagsins og þar á meðal er Blackburn-leikmaðurinn Junior Hoilett sem kom til QPR í gær. Queens Park Rangers verður án miðjumannsins Joey Baron í fyrstu tólf leikjum tímabilsins eftir að Barton missti algjörlega stjórn á sér í lokaleik síðasta tímabils. Hver veit nema að Owen Hargreaves muni hjálpa Hughes við að leysa Barton af á fyrsta þriðjungi tímabilsins.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Sjá meira