Mancini er sannfærður um að Man City verði meistari 20. mars 2012 16:30 Roberto Mancini knattspyrnustjói Manchester City er sannfærður um að lið hans verði ensku meistari í ár. Getty Images / Nordic Photos
Það ríkir mikil spenna fyrir leikina i ensku úrvalsdeildinni sem fram fara annað kvöld. Manchester City, Tottenham, Chelsea og Liverpool verða öll í eldlínunni. Manchester United er með fjögurra stiga forskot á Man City í efsta sæti deildarinnar að loknum 29 leikjum en nágrannaliðið á leik til góða í kvöld þar sem Man City tekur á móti Chelsea. Svo gæti farið að Carlos Tevez verði í leikmannahóp Man City á ný en það er ljóst að John Terry fyrirliði Chelsea er úr leik vegna meisðla. Endaspretturinn á deildarkeppninni er hafinn. Aðeins 9 umferðir eru eftir en Roberto Mancini knattspyrnustjóri Man City er ekki í vafa um að lærisveinar hans muni standa uppi sem Englandsmeistarar í maí. Manchester City á eftir að mæta Englandsmeistaraliði Man Utd á heimavelli en sá leikur fer fram 30. apríl. „Við vinnum titilinn, við munum gera allt til þess að vinna. Fram að þessu hefur okkur gengið stórkostlega í deildarkeppninni. Við þurfum að halda áfram á sömu braut. Þar sem við spilum bara einn leik á viku þá getum við verið einbeittari en áður," sagði Mancini við fréttamenn eftir æfingu Man City í dag. Allt bendir til þess að Argentínumaðurinn Carlos Tevez verði á meðal varamanna á morgun, aðeins fimm vikum eftir að hann kom til Englands eftir þriggja mánaða „frí" í Argentínu. Tevez yfirgaf félagið án leyfis eftir að hafa lent í útistöðum við Mancini í leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Í þeim leik neitaði Tevez að hita upp og koma inná sem varamaður. Mancini varð æfur í kjölfarið og hafði hug á því að láta Tevez dúsa í „hundakofanum" út leiktíðina. Þeir hafa nú náð sáttum og Tevez baðst afsökunar á framferði sínu og hegðun. „Hann er að verða betri og kannski er hægt að nota hann í 25-30 mínútur. Hann þarf að spila en það er ekki möguleiki að hann leiki í 90 mínútur. Ég tek ákvörðun um þetta á morgun þegar ég hef skoðað stöðuna á leikmannahópnum," sagði Mancini. Leikirnir í ensku úrvalsdeildinn annað kvöld eru: 19:35 Man. City – Chelsea [Stöð 2 Sport 2 HD] [Stöð 2 Sport 2] 19:38 Tottenham – Stoke [Stöð 2 Sport 5] 19:53 Everton – Arsenal [Stöð 2 Sport 4] 19:53 QPR – Liverpool [Stöð 2 Sport 3]
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira