Erlent

Evangelos sjálfkjörinn leiðtogi PASOK í Grikklandi

Evangelos Venizelos fjármálaráðherra Grikklands verður sjálfkörinn leiðtogi gríska sósíalistaflokksins PASOK en leiðtogakjörið átti að fara fram eftir viku.

Þetta var niðurstaða flokksráðstefnu PASOK sem haldin var í gær en engin mótframboð gegn fjármálaráðherranum komu þar fram.

Kosningar eru framundan í Grikklandi, nú þegar búið er að afgreiða nýtt neyðarlán til landsins og kröfuhafar hafa fallist á afskriftir á grískum ríkisksuldabréfum. Kosningarnar verða haldnar í næsta mánuði eða byrjun maí og á PASOK undir högg að sækja í þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×