Kuyt tryggði Liverpool sigur á United Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. janúar 2012 00:01 Nordic Photos / Getty Images
Varamaðurinn Dirk Kuyt var hetja Liverpool á Anfield í dag þegar liðið lagði Manchester United 2-1 í 4. umferð enska bikarsins. Hollendingurinn skoraði sigurmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok. Flest stefndi í 1-1 jafntefli enda afar fá færi í síðari hálfleiknum. Þá sendi Pepe Reina langan bolta fram völlinn, Andy Carroll framlengdi knöttinn inn á Kuyt sem sendi knöttinn í nærhornið. Stuðningsmenn Liverpool fögnuðu markinu ekki síður vel þar sem Patrice Evra var sá sem átti að hafa gætur á Hollendingnum. Heimamenn komust yfir um miðjan fyrri hálfleikinn. Steven Gerrard tók hornspyrnu beint á kollinn á Dananum Daniel Agger sem skallaði knöttinn í netið. Leikmenn Liverpool fjölmenntu á markteig United og staðsetti Andy Caroll sig þannig að David De Gea, markvörður United, komst ekki að knettinum. Greinilegt að Liverpool-menn ætluðu að pressa á De Gea sem hefur virkað afar óöruggur í marki liðsins á leiktíðinni. United sótti í sig veðrið í kjölfarið og tókst að jafna metin skömmu fyrir leikhlé. Rafael nýtti sér mistök Jose Enrique og sendi fyrir á Ji Sung Park sem sendi knöttinn rakleiðis í nærhornið. Fátt markvert gerðist í síðari hálfleiknum þar til Kuyt tryggði Liverpool sigur og um leið sæti í 5. umferð enska bikarsins.
Enski boltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Víkingur R. - Keflavík | Er aftur Evrópuþynnka? Íslenski boltinn Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira