Leikmenn QPR og Chelsea tókust ekki í hendur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. janúar 2012 12:18 Anton Ferdinand þurfti ekki að taka í höndina á John Terry fyrir leikinn í dag. Getty Images / Nordic Photos
Nú stendur yfir viðureign QPR og Chelsea í 4. umferð enska bikarsins í knattspyrnu. Leikmenn liðanna heilsuðust ekki fyrir leikinn líkt og tíðkast og hefur enska knattspyrnusambandið sent frá sér yfirlýsingu þess vegna. „Í kjölfar viðræðna hjá fulltrúum félaganna og knattspyrnusambandsins á föstudagskvöld og laugardagsmorgun hefur verið ákveðið að leikmenn liðanna muni ekki heilsast fyrir leik líkt og venja er," sagði í yfirlýsingunni. Knattspyrnusambandið segist hafa samþykkt þetta vegna þeirrar spennu sem ríkir milli félaganna. Rannsókn á meintum kynþáttaníð John Terry í garð Anton Ferdinand í viðureign liðanna í deildinni fyrir áramót stendur enn yfir. Málið var svo enn alvarlegra í vikunni þegar Ferdinand fékk byssukúlu send heim til sín í pósti. Í kjölfarið réð Ferdinand öryggisverði sem fylgja honum hvert fótmál. Frægt er þegar Wayne Bridge tók ekki í hönd John Terry í viðureign Chelsea og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um árið. Bridge var þá allt annað en sáttur við Terry sem hafði sofið hjá fyrrum eiginkonu Bridge. Atvikið vakti mikla athygli og greinilegt að QPR og Chelsea hafa viljað forðast álíka atvik í leik dagsins. Leikurinn er í beinni textalýsingu hér á Vísi og í beinni sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 Sport 3.
Enski boltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Víkingur R. - Keflavík | Er aftur Evrópuþynnka? Íslenski boltinn Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira